Jæja haldið þið að ég sé ekki bara komin með bloggsíðu,,já ég af öllum hehehe(jahérnahér)
Það er sko mikið um að vera hjá mér núna!! Við vorum að láta skíra eins og fram hefur komið, um helgina sem er að koma er ég að fara til Sibbu systur ásamt hinum skvísonum í Spesíum(saumaklúbbnum okkar) og við ætlum að hafa heilann dag í föndurdag, gerðum þetta í fyrra og það var rosalega gaman, bara föndra fyrir jólin og mala allan daginn saman og ekki má gleyma að þar fáum við allskyns góðgæt en við komum allar með eitthvað á borðið, það er svooo kósý…svo pöntum við okkur mat seinnipartinn og endum góðan dag á að borða saman
Helgin eftir þessa þ.e um mánaðarmótin nov-des þá verður Kristófer sko 15 ára úps…tíminn líður.En þá fer ég ásamt mömmu, systrum mínum, Fríðu og Betu í bústað heila helgi þar ætlum við að hlusta saman á jólamusik og föndra eitthvað saman fyrir jólin og að sjálfsögðu kemur Mikael Logi með í þetta allt heheeh, það verður rosalega næs, Pálmi verður heima með eldri prinsana og lofar Kristofer að bjóða vinum heim og hafa gaman á meðan hann fer eitthvað út með Alexander bíó og eitthvað, gaman hjá þeim karlabúskapur heila helgi.
Á fimtudeginum eftir bústaðarferðina förum við saman til Köben við hjónakornin og Mikael Logi já það eru forréttindi að vera áskrifandi á mjólkurbúi mömmu þá fer maður með ALLT.En við ætlum að fara og sjá Köben í jólabúningi og njóta þess að vera saman,,, gott út að borða og kanski versla nokkrar jólagjafir hver veit, Rósa systir og Stefán koma með okkur svo það verður enn meira gaman að fara með einhverjum, þetta verður BAAARA gaman ég get varla beðið, það hefur ekkert af okkur farið til Köben áður svo það verður ennþá skemtilegra.Við förum á fimtudegi og komum heim á mánudegi.Sunna systir ætlar að flytja inn á meðan og passa heimilið,, það þarf varla að passa þessa stráka okkar þeir eru orðnir svo stórir ;-) svo þegar við komum heim þá er bara að gera allt tilbúið fyrir jólin, þessi jól verða aðeins hátíðarlegri hér hjá okkur núna,komin í okkar eigið húsnæði og ekki að vinna öll jólin eins og í fyrra OOOOG komin með enn einn prinsinn til okkar.Þetta er bara yndislegur tími hjá okkur enda ætlum við bara að njóta hans saman.Við erum svooo heppin eigum bara fullkomið líf með fjóra fullkomna stráka, allt er fullkomið á endanum hvernig sem það fer(þá er það fullkomið)with ups and downs,,, jájá það er bara þannig. strákarnir mínir