Er sumarið komið?

Já ættli hann Siggi stormur sé að segja satt!!!Er veturinn búinn, þá stittist í sumarið :-) vona að guð gefi okkur eins gott sumar og við fengum í fyrra ;-) það væri sko bara vel þegið, ekki satt?

þessi helgi er búin að vera geggjuð, þetta veður eitt og sér lyftir manni ekkert smá upp.

Núna er maður byrjaður að alvöru í átakinu fór í fyrsta tímann minn á miðvikud. og svo föstud. þá var sko Taæ Bó það er ekkert auðvelt skal ég segja ykkur en mjög gaman að kíkja í kringum sig og sjá einbeytningarsvipinn  á öllum hahaah frekar findið hehehehe en þetta verður allt miklu auðveldara og skemtilegra þegar maður losnar við eitthvað af öllum þessum maga, hann er frekar  mikið fyrir mér í öllum þessum teygjum og beygjum :-(

En það kemur nú.

Eftir tímann komum við Ágústa við hjá Rósu minni og sóttum hana, en hún er búin að vera innilokuð í veikindum þessi elska og og var svo einnig bíl-og karlmannslaus ein heima svo ég bauðst til að bjarga henni frá þessu öllu og koma í mat til mín,æi það er alltaf jafn næs, svo kom Jóel Örn og gisti hjá okkur en Ágústa og Einar voru að fara út, svo við spilltum honum í leiðinni og´LÉTUM ( hehehe) hann vaka til þrjú um nóttina og spila tölvuleik með Alexnaderi og vini hans það var sem sagt rosa gaman hjá þeim.

Við höfum reyndar ekkert nýtt þetta geggjaða veður til að vera úti, en ég og Mikael Logi fórum í næstsíðasta sundtímann okkar í gær, förum í síðasta í fyrramálið, Pálmi kom ekki með okkur en Rósan okkar kom og tók upp helling á video ;-) og sá prinsinn sinn svamla um og kafa og já hún er líka vitna af stælunum í mínum gagnvart Magneu sundkennaranum hehehe hann er svo ótrúlegur hann bara vill ekki sjá hana en var samt skárri núna en hún mátti alls ekki taka hann þá varð hann alveg brjálaður hehehe og nú er það fast á filmu.

 Svo fórum við bara heim eftir smá næs samræður sem ég og Rósan mín áttum saman, það var voðalega næs!! takk Rósa mín!!!!

Mikael fékk grautarlinginn sinn mikið svangur eftir svona strembinn sundtíma ;-)

og fór svo út í vagn um 14:00

svo kom Rósa að sækja okkur Mikael og við fórum saman í kaffi til Fríðu, en Gunni hefði orðið sextugur þann 12. það var rosa gaman að koma þangað, svo fórum við eftir kaffið úti garð og þá sá ég leiðið hans í fyrsta sinn, mikið svakalega er það fallegt, mikill missir að missa þennan yndislega mann.

Svo komu Ágústa,Einar og strákarnir til okkar í lasagna það var rosalega næs fengum okkur smá rauðvín með matnum, og svo fengu strákanrnir sér smá kaffi og koníak ;-)

En við stabilu vinkonurnar vorum bara í vatninu heheehe,,, svooo duglegar

svo sátum við bara á malinu langt fram á nótt :-) geggjað næs.

Í dag er ætlunin að vera dugleg og fara í ræktina ásamt Rósu og Ágústu og fara svo í sjávarseltupottinn(losna við allt þetta seljulita hahahahaha)og jafnvel í gufu á eftir á ohhh það verður sko æði, svo ætla ég að gera tilraun til að fá fjölsk. mína í bíltúr upp í Bláfjöll og hafa það gott úti í þessu geggjaða veðri ;-) og kanski ná góðum myndum!!

En við sjáum hvernig það fer síðar :-) .

En jæja þá er svo bara harkan sex á morgun ný vika í átakinu mínu ;-) spennó!!!

tha tha for now!!!!!!

(munið mynda-slide-showið neða á síðunni ef þú ert ekki búin að sjá það og að sjálfsögðu kvitt kvitt ;-)    )

Með smá fikti!!

Já ég er búin að vera að breyta síðunni í allann dag, þetta er voða gaman, komin með slideshow og allt hvernig líst ykkur á?

Er ég ekki bara að verða klár?

endilega ef þið eruð með einhverjar hugmyndir af breytingu hjá mér látið það koma!!!

ég var að vona að ég gæti sett inn myndaalbúm, finn allavega ekki út hvernig ég ætti að geta það eða er það kanski bara ekki hægt?

allavega þá er ég að reyna að fikra mig áfram.

það er svo ömulegt veðrið úti nennti alls ekki að taka bílinn og fara neitt, svo ég bara eyði tímanum mínum hér að reyna að læra eitthvað nýtt :-)

Check out my Slide Show!

Arkitektar og íslensk húsnæði

hvað er að ske hér – stórslys ef þú spyrð mig . Hvernær ætla íslenskir arkitektar að fara vakna fyrir þvi að það er gamaltdags hugsun að hjónaherbergi sé 17 fm og að  við “bara sofum þarna ” er svo úrelt hugsun sem frekast getur.

og ég tala nú ekki um þegar er þeir eru að setja eitt baðherb.  í 150 – 200  fm hús/íbúð  bara hreinlega skil þetta ekki – íslanskir arkitektar takið eftir “Við erum mikið inni hjá okkur yfir árið – bæði vegna veðurs og birtu. Við viljum nota svefnherb líka til slappa af og lesa án þess að þurfa að liggja uppí rúmi , fá aðstöðu til vinna / horfa á sjónvarp og frv. Skoðið þessar myndir hér fyrir neðan -

dæmi á góðu masterbedrrom

annað gott dæmi

Annað – öll hjónasvefnherb þurfa að hafa sér baðherb púntur. þegar þú ferð erlendis þá sérðu þetta og öllum finnst þetta mjög þægilegt – af hverju eru ekki verið að gera þetta hér ? Ég bjó erlendis til fjölda ára og var með 35 fm svefnherb  risa stóru baðherb með innfeld fata herb - af hverju gera arkitektar ekki þetta á íslandi ?