JÁ JÁ ég veit,,,ekki nógu dugleg að blogga!!!
En ég ætla að renna mjög hratt yfir páskana.
Við systurnar fórum uppí bústað í Grímsnesinu sem mamma og pabbi leigðu og sváfum eina nótt áður en þau komu.
Sibba komst reyndar ekki með en Imba vinkona Sunnu kom hún er BAAARA yndisleg, og að sjálfsögðu hann Mikael Logi!!
þetta var algjört æði!!!við borðuðum góðann mat, fórum í pottinn og spiluðu clue, sem sagt alveg geggjað.
svo komu mamma,pabbi,Fríða og Helga Jóna næsta dag og við fórum aftur í bæinn eftir að pabbi var búinn að bjóða okkur í æðislega góðann mat.
22.mars bauð Rósa okkur Spesíum í GEÐVEIKANN mat í tilefni afmælis hennar 21.mars
það vantaði reyndar Lísu þar en Beta kom og var með okkur, þetta var ferlega notarlegt kvöld, alltaf svo kósý hjá þessari elsku og næs!!!!!
23.mars fékk litli frændinn okkar það fallega nafn Oliver Ísak, fallegt nafn á fallegann dreng
og svakalega flott veisla hjá þeim sem við fórum í.
Um kvöldið eldaði ég grísabóg og Arnórinn minn kom í mat með Sögu sína, það var æðislega næs, æi mér finnst svo þægilegt að hafa þau
þau eru svo mikið sætust.
Stittist í að Saga fái bílprófið sitt
gaman gaman!!!!
25.mars átti mamma mín afmæli, og kom í bæinn úr bústaðnum þá, svo ég og Arnór kíktum í smá kvöldkaffi til þeirra, með svona fyrirfram gjöf frá pabba og okkur systrunum og fjölsk. og kort.
en við gáfum henni i-pot fyrir ræktina til að’ dilla sér með Tinu Turner hehehe
27.mars komu tvíburar í heiminn í Noregi hjá Hafsteini og Guðrúnu fjórði strákurinn og haldið þið að þau hafi svo ekki fengið eins prinsessu í kaupbæti
æði æði
allt gekk vel og ekki nema 17 mín. á milli þeirra glæsilegt, svo koma þau heim til að skíra þau svo það verður rosalega gaman að fá að sjá þau öll!!!
29.mars fengum við Huldu og Reyni í mat og komu Inga Jara og Alda með þeim
það var góður bónus maður sér þær svo sjaldan, agalega gaman bara.
Nú er sem sagt kominn april og allir trukkabílstjórar að verða vitlausir í mótmælum
algjörar hetjur, það er bara vonandi að þetta allt beri einhvern árangur.
Ebeta frænka og Oliver Ísak komu og sóttu mig og Mikael Loga um hádegi í dag og við fórum saman í kaffi til Rósu,,,, en Ebeta kom við í bakaríi og bauð okkur lunch.
prinsarnir okkar bara sváfum framan af, og líka krúslurnar á Krúslukoti hjá henni Rósu sín!!! svo við gátum bara sitið þrjár saman í rólegheitunum og malað saman, ferlega næs.
Rósa gaf prinsinum sínum tanngjöf,,,en hún fann fyrstu tönnsluna og ekki vantaði flottheitin hjá henni frekar en fyrri daginn
hann fékk geggjuð föt frá 66¨norður, ekkert smá flott gjöf
enn og aftur Takk fyrir okkur Rósa mín!!!
Svo kom náttulega að því að vinnan kallaði á Rósu og friðurinn var úti fyrir hana, en svo kom hún Ellen Skottuskotta alltaf jafnmikil skotta hehehe
svo við fórum frá Rósu eitthvað um 15:30
og ég var svo dugleg að ég bara skúraði allt þ.e niðri hehehe og þurrkaði af, búin að flýta smá fyrir morgundeginum!!!ekki leiðinlegt
jæja þá læt ég þetta duga í bili.
Það er slide show hérna neðar!!
munið nú að kvitta mér finnst svooo gaman að fá smá að lesa
tha tha for now………..
Rósa María sagði,
apríl 5, 2008 kl. 12:00 am
já vá vá viðburðaríkur mars mánuður hjá ykkur
Svoooo gaman að lesa loksins nýtt blogg
það er alltaf svo gaman að fá ykkur í heimsókn hreinlega elska það!!! hafðu það gott yndislegust mín
love you sooo much ….. vonast til að heyra í þér sem allra fyrst .. hef svo góðar fréttir að færa fyrir prinsilíus
Rósa María sagði,
apríl 5, 2008 kl. 12:00 am
já vá vá viðburðaríkur mars mánuður hjá ykkur
Svoooo gaman að lesa loksins nýtt blogg
það er alltaf svo gaman að fá ykkur í heimsókn hreinlega elska það!!! hafðu það gott yndislegust mín
love you sooo much ….. vonast til að heyra í þér sem allra fyrst .. hef svo góðar fréttir að færa fyrir prinsilíus
my self ;-) sagði,
apríl 5, 2008 kl. 8:01 am
Takk fyrir að kvitta,það er svo gaman að sjá að einhver kemur hingað inn
hahaha nei nei ég er nú ekki svo kræf, en hringi í þig um leið og tíminn verður kristilegur ,eða ég sjái þig inná msn
Núna er laugard.morgun og klukkan er rétt að verða 8:00 ætti ég að svala forvitni minni og hringja í þig
Rósa María sagði,
apríl 16, 2008 kl. 12:41 pm
hæ sætasta mín. Langaði bara að senda þér knús knús og fullt af kossum.
Lísa frænka sagði,
ágúst 5, 2008 kl. 2:31 pm
Jæja Lilja Hafdis ….er fyrir löngu síðan farin að bíða eftir færslu hehe Páskarnir ERU búnir !!!! Knús og kossar Lísa frænka
Lísa sagði,
mars 3, 2009 kl. 2:57 am
Sæll!! Öll ljós kveikt ..og ENGINN heima !!! Hvernig er þetta kona…hefur þú eitthvað ANNAÐ að gera en að blogga ???????? hehe. Knús knús