Tannálfur!!

Hehehe já það er sko komin tönn hjá mínum!!í neðri góm nánar tiltekið,algjör stóri strákur.Rósa frænka var sú heppna og fann fyrstu tönnina 6.mars.

Við vorum í sundi í morgun og var hann Mikael Logi bara pirripú ef sundleiðbeinandinn hans kom til hans þá bara vældi hann og ætlaði sko ekki á láta hana neitt hnoðast með sig og setja sig í kaf hahaha það var frekar fyndið ákveðinn ungur maður veit hvað hann vill og hvenær!!!! ;-)

Ég var bara á bakkanum í dag svo ég notaði tækifærið og tók video og myndir voða gaman.

Svo komum við við í bakaríinu á leiðinni heim og vöktum stóru strákana með bakkelsi,voða  gott.

Ég var að skoða myndir í gær frá því sróru strákarnir mínir voru litlir jii það er svo gaman að fara svona memory-lane, þetta voru svo skemtilegir tímar með þá þrjá svona litla, en þá sá ég sko svart á hvítu(eða í lit :-)   ) hvað hann Mikael Logi er líkur Alexanderi nema bara þykkari hehehe algjörar dúllur.

Annars held ég að þetta verði bara róleg helgi ekkert sérstakt um að vera, en er að spá í að fara með Mikael í smá myndatöku í þessum fallega snjó í dag á snjóþotu ;-) það er svo fallegt veður vona bara að ég nái fallegu snjóbakgrunn, ef hann verðu ekki allur bráðnaður þegar prinsinn vaknar.

jæja ætlaði bara að monta mig á fyrstu tönninni!!!

   THA THA FOR NOW………;-)

PS. endilega scrolliði niður og kíkið á slide showið!!! ;-)

3 Ummæli

  1. Rósa María sagði,

    mars 8, 2008 kl. 5:29 pm

    Stóri strákur frænku sín :D :D ég er búin að leggjast aðeins yfir síðuna þína elskan mín og finn ekkert út hvernig ég get flokkað þetta en ætla að skoða það samt betur :D knús knús og fullt af kossum Rósa María

  2. Sibbulina sagði,

    mars 11, 2008 kl. 2:22 pm

    Til lukku með tönnsluna þína. Týpiskt að þegar sibban þín er búin að gefast upp á að finna tönnslu þá bara kemur hún og Rósan þín finnur hana.
    Kv Sibba

  3. Sunna Dögg sagði,

    mars 14, 2008 kl. 9:43 am

    Hæ hæ sæta systir og co ;) Til lukku enn og aftur með tönnsluna sæti gullprins ;) hehh ;) Hafið það rosa gott um helgina ;)


Rita ummæli