Meira í Febrúar!!

Já ég sagðist ætla að vera duglegri að blogga, svo hér kemur meira!!

já það er búið að vera nóg að gera í þessum mánuði.

Matarklúbburinn okkar koma saman heima hjá Dengsa og Þurý 16.feb. það var bara voðalega gaman og alveg GEÐVEIKUR matur enda svaka góðir kokkar á ferð tek að ofan fyrir þeim hjónum, en þau voru með n-Entrecode hefði ekki getað verið betur eldað,við sáum um forréttinn og þá uppskrift fékk ég hjá Sibbu systir(hverjum öðrum hehehe)geggjað gott pönnusteiktur hörpudiskur með allskyns gumsi og svo mótaði ég hrísgrjónakúlur á hvern disk og pestóbrauð, María og Arne sáu um vínið svakalega gott val!!! og svo kom María og Sigmar með eina bestu köku sem ég hef smakkað svaka massakaka ekta spari sem maður ætti að gera um hver jól, enda ætla ég að gera hana um jólin og hver veit nema að ég geri eina fyrir næsta saumó hmmm hvernig líst ykkur spesíum á það ;-)     stelpur koma svooo……..kvitta og segja comment

sem sagt perfect matarboð í alla staði, hlakka bara til næsta, og að sjálfsögðu var Mikael hrókur alls fagnaðar naut allrar þessara athygli, og fékk svakalega flottann galla úr Zöru frá Maríu og Sigmari.

19.feb. fór ég loksins í klippingu og strípur og ætla ekki að segja ykkur hvað það var mikill léttir,hún Hanna Kristín er algjör perla ég er alltaf jafn ánægð þegar ég er búin að vera hjá henni, hún lýsti það vel núna og létti vel á hárinu svo ég sveif út  ;-)

21.feb var svo saumó hjá Ebetu, og ekki neinar smá kræsingar á borðum þar, hún Ebeta á svo myndalegann mann sem bakaði líka þessa svaka tertu, og hun gerði helling sjálf  nota bene nýkomin af spítalanum eftir barnsburð,,,,,,hello hún er svo mikið duglegust.

og já,,,nei það var EKKERT  saumað þetta kvöld það var að sjálfsögðu mikið dúllast í honum Olive okkar spesíustrák ;-) ohmygod talandi um beauty prins,,, hann svaf allann tímann í gegnum allt hnoðið og hávaða hlátur og læti í þessum líka flottu spesíum hehehe

Inga Lára stóra systirin hans var sko að mála sig og gera sig og Bratz dúkkuna sína voða sætar og fínar fyrir svefninn, enda engin smá dúllurúllurúsina á ferð væri svo mikið til í að eiga eina svona.

Svo var að sjálfsögðu mikið dúllast með Mikael Loga líka, ekki dónalegt fyrir þessa litlu prinsa þrjá að vera inní svona spesíuklúbb.

En allavega geggjað gaman í þessum sauma/kjaft klúbb.hehehe

Og já nú er komið að ÁRSHÁTÍÐ NÝHERJA!!!

Ekkert sparað þar frekar en fyrri daginn alltaf jafn flott og gaman, fékk svaka flottann síðkjól hjá mömmu, og var bara nokkuð fín þó ég segi sjálf frá, já og við hjónin!!

Rósa og Stefán pössuðu Mikael Loga.

Rósa kom og bæði greiddi mér og málaði mig svo ég var alveg extra fín, það var rosa flott hjá henni, svo fórum við um 18:00 en þá var byrjað á fordrykk.

þetta var allt voða flott og fínt, Reynir leigði sér Toxedo svaka flottur og Hulda í æðislega flottum kjól glæsileg hjón!!!

það var rosalega hress veislustjóri Arnar Jónsson alveg meiriháttar hress náungi hann var í skotapilsi svo það voru margar konurnar sem spurðu hann sömu spurningu,,,ERTU í nærbuxum hehehehe

Diddú kom og söng mér finnst hún alltaf jafn æðisleg, en það voru nú ekki allir jafnsammála mér þar.

maturinn var æðislegur fiskiréttarsúpa-nautalund og svo heit súkkul.kaka ásamt fordrykk-hvítvín-rauvín og svo kaffi og grand.

ámeðan á öllu þessu stóð var mikið dúllað og dekrað við litla kútinn minn heima, Rósa setti hann í bað og gaf honum að borða og lék helling við hann ásamt Stefáni að sjálfsögðu.

svo kom Stefán og sótti okkur um miðnætti.

Rosalega gaman.

Og svo er ég hér núna Sunnud. 2.mars já mars það er strax kominn mars, tíminn líður full hratt eins og maður segi á lélegri ísl.    Time flies when youre having fun.  :-)

þetta var yndisleg helgi.

Sibba kom hingað á Föstudaginn með Helgu Jónu og færði mér tvö glæný Sibbubrauð,en hún var að baka einhvern heilann helling kl 5 um morguninn í vinnunni til að selja fyrir þær í vinnunni, æðislega góð brauð.

Á laugardagsmorguninn vöknuðum við snemma til að fara í ungb.sund með Mikael Loga, alltaf jafn æðislega gaman.

svo var ég með skonsukaffi fyrir fjölsk um 14:00 en Pálmi fór að hitta þau Gauta og útaf Imerial forritinu sínu, það gengur allt svakalega vel ;-)

svo komu Arnór Rafn -Rósa og Stefán-Sunna Dögg og mömmu og pabba og ég bakaði skonsur og var með ferska ávexti og fl. það var voða gaman, svo þurfti mamma að fara að vinna.

Svo fórum við Pálmi í Heyfingu og gengum frá námskeiðinu fyrir mig 8 vikna átaksnámsskeið sem byrjar 10.mars   hlakka svoo til og við fórum svo í Intersport og versluðum á mig góða skó fyrir átakið mitt, og skruppum inní Krónuna.

Hvað haldið þið svo að ég hafi gert um 11 þetta kvöld!!!!!!

Ég fór með Rós vinkonu á Players á skagfirskt kvöld heheh já já ég…..

það var voða gaman, ég þekkti nú ekki marga en kannaðist við helling af andlitum, svo komu Rósa ogStefán, en þau voru í fimmtugs afmæli, og komu svo, en ég fór fljótlega eftir það alveg búin á því enda klukkan langt gengin í 2. Svo ég skutlaði þeim hjónakornum bara heim og fór svo heim til mín.

Í dag sunnudag vaknaði ég eitthvað voða þreytt, en náði mér svo yfir kaffibolla ásamt Sibbulínu en hún kom í vonda veðrinu og sýndi mér flottu ársátíðarfötin sín, svaka fín og flott ;-)   svo hentumst við í Elko á meðan litli svaf til að ath hvort eitthvað væri eftir af Raclett á tilboðinu hjá þeim,,,en nei allt búið,  svo við skruppum inní Hagkaup og svo varð ég að drífa mig heim því við  hjónin vorum búin að mæla okkur mót með Silvie og Steinþór heima hjá þeim höfum ekki hitt þau síað áður en við fluttum út já skömm af þessu sambandsleysi endalaust, en það að hreint æðislegt að hitta þau þau eru svo æðisleg bæði tvö algjört eðalfólk og geggjað að sjá krakkana þeirraþá fyrst sér maður hversu langt ewr síðan….þau eiga svo fallegt heimili og enn fallegri börn.

já já kanski er ég orðin svolítið væmin en vitið þið hvað,,,,,, þetta er bara rétt.

svo var farið heim og eldað kjöt í karry og Hulda og Reynir komu í mat, það var voða gaman, þurfum að gera meira af þessu, koma svona saman og hafa gaman.

jæja en núna ætla ég að hafa enn stittra á milli blogga hehehe

þá er bara að gera sig klára undir nýja viku,spáð er enn meiri snjó og kulda, æ þá er svo notarlegt að þurfa ekkert að vera að rífa drauminn minn upp og fara út.

JÆJA HVERNIG VÆRU NÚ AÐ KVITTA!!! annaðhvort kemur enginn hingað til að skoða eða þið verðið að taka ykkur á því annars held ég að ég nenni þessu ekki :-(

Hlakka til að sjá ykkur  Bæ í bili.

7 Ummæli

  1. Sibbulina sagði,

    mars 3, 2008 kl. 6:28 pm

    Hæ stóra sys. Halló wondows… ég saumaði í saumaklúbbnum:)… Já Hafdís mín maður saumar sko í saumaklúbbi:) KJÁni. Ég pant smakka kökuna namminamm… Elska þig kella mín sjáumst sem fyrst.
    Þín Sibba

  2. Lísa sagði,

    mars 4, 2008 kl. 12:31 pm

    Hæ hæ frænka !! Rosa gaman að hafa þig hér í bloggheiminum ;) Greinilega nóg að gera hjá ykkur. Til lukku með “Hreyfingu”…. maður verður að fara að sparka í rassinn á sér og gera eitthvað líka :-) Hlakka til að hitta ykkur, vonandi sem fyrst. Kveðja Lísa

  3. my self ;-) sagði,

    mars 4, 2008 kl. 4:45 pm

    Hæ skvísur,,en gaman að fá smá comment ;-)
    já það er rétt Sibba mín auðvita saumum við í þessum saumaklúbbi hahaha
    já Lísa mín takk,,, ég er voð’a ánægð að vera búin að stíga þó það skref að skrá mig á átaksnámsskeið ;-&
    og nú á að standa sig sko!!
    vona að ég sjái ykkur sem fyrst :-)

  4. Sibbulina sagði,

    mars 4, 2008 kl. 8:47 pm

    Kvitt kvitt:) var að kíkja við
    Knús og kossar

  5. Erla Anna sagði,

    mars 5, 2008 kl. 3:47 pm

    Ég styð hugmyndina með kökuna;) Kvitt kvitt skvís, rosa gaman að lesa:D

  6. liljahlord sagði,

    mars 5, 2008 kl. 11:52 pm

    Gaman að sjá þig kíkja Erla mín,já þetta er THE best cake ;-)
    hvernig lýst ykkur á þessa bleiku síðu hehehe smá prufa

  7. Erla Anna sagði,

    mars 6, 2008 kl. 8:29 am

    Nýja lúkkið er rosa flott, mjög sommerí og sætt:D
    Knús knús (°_°)


Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.