Febrúarblogg!!!

Jæja Talandi um að vera alls ekki að standa sig í blogginu hehehe jólahvað…….en bæti hér með úr því.

Já hvar á maður þá að byrja hmm… jólin búin og alveg að koma mars.hehehe

Arnórinn okkar varð 19 ára oh my god pæliði í því litli strákurinn hennar mömmu sín bara orðinn fullorðinn, en hann verður nú samt alltaf litli strákurinn minn,hann er alveg yndislegur, ég er alltaf jafnhreikin af honum, hann er byrjaður aftur í skóla, ég er voða ánægð með það, það er ekki mikið sem bíður þessara krakka í dag án menntunar það er bara þannig og fer sífellt vesnandi.

Annars er nú bara búið að vera rólegt hér hjá okkur,ég bara nýt þess að vera heima með litla strútinn minn, hann er algjört ÆÐI.Hann verður by the way 6 mánaða á morgun,,,,,já tíminn líður svooo hratt.

já við fórum í eins árs afmæli uppá Skaga um daginn 13 jan. en þá varð hann Hákon Árni ofurtöffari eins árs nánar tiltekið 9.jan það var voðalega gaman.Ekki vantaði kræsingarnar allt svo flott og gott.

Svo byrjuðum við með Mikael Loga í ungbarnasundi 12 jan. það var rosalega gaman hann bara lá afslappaður eins og hann hefði bara ekki gert annað en að vera í sundi, það eru tveir strákar í öllum hópnum, og er hinn strákurinn miklu yngri en Mikael hehehe

hann nýtur þess alveg rosalega að vera í sundinu og sofnar svo vel strax á eftir.

Sama dag og við fórum í fyrsta sundtímann hans Mikaels þann 12.jan.fórum við allar systurnar og mamma með Sibbulínunni okkar að máta brúðarkjól,,,,, það var rosalega gaman hún kolféll fyrir öðrum kjólnum sem hún mátaði, sem og við hinar,,,, já og svilkona hennar var líka með okkur og að sjálfsögðu Helga Jóna brúðarmeyjuprinsessan ;-)

Þessi kjóll er ÆÐISLEGUR og Sibba ber hann svo rosalega vel,,,, alveg stórglæsileg.

Eftir mátunina fórum við allar á grænmetisbarinn í Skeifunni og fengum okkur lunch saman,ég stoppaði reyndar ekki lengi það var lítill kútur heima sem var vaknaður og svangur eftir sundtímann sinn, en ég náði alveg að borða í rólegheitunum með þeim samt, voðalega næs.

Hann Pálmi fór svo til Orlando á lotus sphere 18.jan Það var náttulega BAAARA geggjað fyrir hann,,, á öllum sviðum, hann naut sín svooo vel bæði náði hann að hitta vini okkar uppi Lake Mary og fékk helling útúr ráðstefnunni, hann fór í lok ferðarinnar og keyrði alla leið niður í Naples og náði að hitta Evelyn guðmóður sína, en hún er orðin mjög veik, svo ég er hrædd um að hann verði ævinlega þakklátur fyrir þann tíma sem hann náði með henni, en það var honum rosalega erfitt þegar hann fór þaðan.  :-(

Hann náði einnig að hitta Kim systur sína í Sarasota á leiðinni niðureftir

sem sagt rosalega mikil hlaup á mínum manni á stuttum tíma, en sem betur fer náði hann að njóta þessa tíma, hann kom líka mjög þreyttur heim , en sáttur ;-)

Á meðan hann var úti var sko stelpukvöld hjá okkur spesíunum(saumaklúbburinn), ég eldaði handa okkur kjúklingapottrétt og pepperoni-pasta, með hrísgrjónum og Sibbulínan mín kom með BESTA HVÍTLAUKSBRAUÐ EVER.

Það mættu allar nema Elisabet, en hún náði ekki að redda pössun,en Ágústa vinkona kom og fékk að vera með okkur

þetta kvöld var voðalega næs.

Hulda svilkona bauð okkur mér og Mikael í kaffi á þriðjudeginum,það var rosalega næs sátum þar bara á malinu og enduðum svo þar í ekta Reynirshamborgara nammi namm það er sko góður borgari, og skemtilegur félagsskapur, þau ákváðu að skella sér til Tyrklands á meðan ég var þar og pöntuðu hehehe ekkert smá geggjað.

Svo kom Pálmi til baka 27.jan klifjaður alls kyns dóti, en ég var búin að panta bílstól,skiptitösku og föt á Mikael svo verslaði hann einnig eitthvað smá líka,(Victoria secret,Bath and bodyworks;-) ofl.)hann keypti svo æðislega sæta Nike boli á litlu turtildúfurnar okkar alveg í stíl(Arnór og Sögu) og sitt lítið af hverju handa strákunum okkar.Það var voðalega gaman að fá hann heim aftur.;-*

Fyrstu helgina í februar buðu mamma og pabbi okkur í þorramat, það var svaka veisla eins og vanalega hangikjöt saltkjöt og þorramatur, algjört æði, þar voru einnig tengdaforeldrar hennar Rósu og Fríða hans Gunna. og að sjálfsögðu við systur og fjölsk.

Sömu helgi var okkur boðið í afmæliskaffi uppá Skaga en þá átti Hlynur Steinn afmæli átta ára gaurinn þetta er ekki fyndið hvað þessi tími líður hratt,hann er svo mikið æði þessi strákur hann sat sko úti í glugga alveg tilbúinn að taka á móti sínum gestum, ekki dónalegt að fá svona sætann afmælisstrák að taka á móti manni með svona líka sætu brosi,,,, en þar voru ekki neitt smá veitingar í boði alltaf eins og jólin þegar maður kemur til Lísu, hvernig verður þetta þegar hún fermir hehehehe  Pant koma þangað  :-)   hahaha

Alltaf gaman að fara í heimsókn uppá skaga.

Febrúar er BUSY mánuður í jammlífinu hjá okkur hjónum(sossum ekki mikið jamm á mér með barnið á brjósti,,,en samt gaman)  9. feb vorum við með svaka flott matarboð, fengum Björgvin og Ragnheiði ásamt Gísla og Kristínu í nautalund og kjúklingabringur með öllu tilheyrandi tókst svaka vel þótt ég segi sjálf frá, fordrykkur og svo desert.

Þetta var svakalega skemtilegt. Maður geir svona alltof sjaldan.

Hún Hulda okkar átti STÓRAFMÆLI en ákvað bara að stinga af upp í bústað með sínum manni, gott hjá þeimenda ekta veður til að vera bara inni í bústað og gera ekki neitt mmm…En við eigum eftir að fara og knúsa hana, það er bara eins og hún búin alveg í útöndum maður er alltaf svo busy,,,eða gefur sér ekki tíma  hmmmmm.

en okkur var jú boðið í kvöldkaffi, þá höfðu sistkyn hennar komið henni á óvart og það var hóað í okkur, en þegar maður er kominn með svona lítinn kút sem er kominn í náttföt og á leið að drekka eftir kvöldmat mömmu og pabba þá hleypur maður ekki svo auðveldlega bara út, hefði án efa verið gaman. En við förum til hennar í rólegheitum fljótlega  ;-)

Já og svo má ekki gleyma stóviðburði februar mánaðar!!!!!

Hann Oliver spesíustrákur kom í heiminn 11.feb jú hú!!!!stór og myndarlegur strákur 20 merkur 57 cm svaka myndó algjör víkingur eins og Erla sagði

Nú get ég bara ekki beðið eftir að fá að sjá þau. þ.e Oliver og fjölsk. hehehe

Hann var nú tekinn með keisara,en hef svosem ekki fengið neinar fréttir um það svo ætla ekkert að fara neitt úti það, en sennilega vegna þess hve stór hann er, ekki er mamma hans nú stór hehehe,, en það sem máli skiptir er að þeim heilsast báðum vel og allt í rétta átt, sama dag átti hún Betan okkar afmæli og dóttir henna Tanja næsta dag, nóg um að vera í afmælum.

Jæja þá er minn prins vaknaður eftir fjögurra tíma svefn úti í rokinu svo ég ætla að fara að knúsa hann og kjassa, svo er jamm helgi núna um helgina og þarnæstu.

matarklúbburinn að bjóða okkur núna um helgina, svo árshátíð Nýherja þarnæstu en ég verð bara duglegri núna að blogga svo það kemur næst  ;-)

svo er saumó í næstu viku!! nóg að gera.

    jæja nú er mér ekki til setunnar boðið lengur  ;-)

                                  tha tha for now   Lilja Hafdís

3 Ummæli

  1. Sibbulina sagði,

    febrúar 13, 2008 kl. 5:14 pm

    Hæ elskan. Mikið að gera hjá minni:)
    Ég er alltaf til í að passa prinsana þína… Ekki gleyma því…
    Elska þig ástin og lít upp til þín.
    Kv Sibba

  2. Rósa María sagði,

    febrúar 13, 2008 kl. 7:54 pm

    ekkert smá blogg hehe alltaf gaman að lesa ;D;D Takk fyrir pepsíið áðan hehehe alltaf svo nice að koma til ykkar. sjáumst vonandi á morgun fallega mín. farið vel með ykkur. hlakka geggjað til saumó í næstu viku ,,, held ég sé að verða háð spesíunum hehehe ekki slæmt. love you þín Rósa María

  3. Lísa sagði,

    febrúar 16, 2008 kl. 12:16 am

    Hæ hæ elsku frænka.
    Alltaf gaman að lesa nýtt blogg ;-) frá þér…. ég var búin að skrifa heillangt comment en ég gerði einhverja vitleysu þannig að það kom ekki inn :-(
    Til hamingju með Arnór ;-) Já, tíminn líður aldeilis hratt. Mér finnst svo stutt síðan ég heimsótti þig á fæðingadeildina eftir að þú áttir hann, ég var svo feimin !! Þú varst allt í einu orðin eitthvað svo mikið eldri en ég ….komin með titilinn “mamma” :-) (ekki það að þú hafir verið ellileg hehe EKKI misskilja mig). Takk kærlega fyrir matarkvöldið ;-) hjá Spesíunum, þetta var bara æði. Gaman líka að hitta Ágústu, hún hefur svo sannarlega ekkert breyst ;-)
    Hlakka til að hitta ykkur Spesíur í næstu viku. Knús og kossar. Kveðja Lísa frænka


Rita ummæli