Jæja þetta eru búin að vera alveg dýrleg jól,, mikið slappað af og haft það alltof gott, við sofum hér fram að og yfir hádegi, bara svakalega næs.
Jæja hvar á ég að byrja…hmmmm Þorláksmessa já það var bara næs dagur ég þreif eitthvað smá, svo fórum við í skötu til mömmu og pabba,, þ.e ég og Mikael Logi, við skutluðum Kristofer í vinnu í Grafarholtið um 15:00 og skutumst þaðan beint til mömmu og pabba,,mmm,,,mér fannst skatan svakalega góð, en ég smakkaði hana í leikskólanum hjá Sibbu í fyrsta skiptið í MÖRG ár,en Sibba var svo sæt að bjóða mér að koma og borða
,,,,, enn og aftur Sibba mín TAKK. Svo komu Fríða og Beta líka að fá sér smá skötu en Beta var bara að lenda frá London, en þau skruppu þangað fjölsk. í smá verslunarleiðangur fyrir jólin,, rosalega gaman að hitta þær og knúsa smá svona korter í jól
Um kvöldið(þorláksmessu) fórum við ég, Pálmi, Alexander og Mikael Logi og löbbuðu niður Laugaveginn ásamt Mömmu, Pabba, Rósu, Stebba og tengdafólkinu hennar Rósu, það var voða gaman en samt svakalega troðið svona með kerru,en maður var svosem ekkert að stressa sig neitt.
Svo fórum við’ fjögur bara í nýja Hagkaup í Holtagörðum og skoðuðum okkur um og versluðum pínu, þ.a.m jólagjöfina hans Alexanders
og vorum svo komin heim um hálf tólf.
Aðfangadagur!!
Arnór kom til okkar eftir matinn og borðaði með okkur möndluísinn hehehe og hann vann möndluna líka, svo svaf hann hjá okkur það var æðislega næs,mér finnst fátt yndislegra en að hafa alla strákana hjá mér í einu,það er bara æðislegt, besta jólagjöfin mín….
En já veð ég hér úr einu í annað hehehe…
Já við borðuðum sko æðislegann mat saman,og höfðum kveikt á messunni á meðan við borðuðum, en Kristófer var EKKI að fíla það, hann var að deyja úr kvölum strákgreyið hahaha
Yngsti meðlimurinn okkar vara sko algjör draumur frá A-Ö hann bara svaf á meðan við borðuðum svo var hann með okkur í sínum líka fínu flottu náttfötum frá sveinka(eins og við hin öll) á meðan við opnuðum alla flottu fínu pakkana,og allir svakalega ánægðir með sitt,,, flottar og nytsamlegar jólagjafir takk fyrir okkur enn og aftur,og vona bara að allir hafi verið jafnánægðir með það sem við gáfum þetta árið(reyndi allavega að velja fallegar og nytsamlegar gjafir );-) og svo eins og við öll vitum þá er það hugurinn sem skiptir máli …….það má svo ekki gleyma því í öllum látonum.
Svo var endað á að setja mynd í tækið sem kom úr einum af þessum pökkum.með heitu súkkulaði í hönd nammi namm hvað er hægt að hugsa sér yndislegra a svona tímum???
Jóladagur!!
Við sváfum FRAMEFTIR heheheog svo var sett á borð um 14:00 smá kalt hlaðborð brauð, lax, síld ofl. namminamm
og svo bara aftur lagt sig með litla kút,,,, og um kvöldið fórum við í þetta líka fína flotta hangikjötsmatarboð hjá mömmu og pabba það var æðislegt eins og allt sem þau töfra fram,,og það var náttúrulega ekki nóg að hafa bara hangikjöt kalt og heitt heldur voru þau einnig búin að gera þennan líka æðislega góða kjúkl/grísakjötsrétt og hrisgrjón mmm…..það var sem sagt mikið borðað og mikið hlegið í það skiptið.Svaka stuð margir góðir brandarar fuku á milli og þó aðallega á kostnað móður okkar hehehehe hún er BAAARA frábær ef þú lest þetta mamma mín þá bara njóttu myndarammans vona að þú farir að skilja hvernig hann virkar svona með nýja árinu hahahahaha
Annar í jólum!!
sama sagan sofið langt fram á hádegi og bara slappað af í okkar náttfötum þar til við skelltum okkur í sturtu og sjænuðum okkur til fyrir næsta boð,,, en Hulda og Reynir buðu okkur í lambakjöt það var líka svakalega gott,,en þá fórum við bara þrjú.Þá fannst Kristóferi nóg komið af formlegheitum og matarboðum hehehe hann fór að hitta vini sína niðurí bæ,og Alexander var þegar kominn þangað og búið að bjóða honum í mat hjá besta vini hans og sleep over,svo við leifðum þeim bara að sleppa.
svo við vorum bara þrjú ein heima það kvöldið það var ferlega næs,rólegheit og rómó
já ekki er hægt að kvarta undan látonum í þessum engli okkar.hann bara drekkur sefur og brosir.
En já eins og þið heyrið þá voru þetta jólin sem við nutum þess að slappa af og vera með strákunum okkar og tala nú ekki um fyrstu jól jólaprinsins,,,sem er bara algjörlega eins og hugur manns,hann er algjört kraftaverk og njótum við hans í botn.
Svolítil breyting frá jólunum í fyrra þegar ég bókstaflega bjó í Nóatúni,,,kom bara aðeins heim til að sofa,það var ferlegt en það var nú samt líka gaman,,en ég sé það núna hvað maður missti af miklu með fjölskyldunni.
Svo eru bara áramótin eftir og eru þau by the way bara á morgun ,,,gaman gaman.
þá koma Mamma, Pabbi, Sunna Dögg, Rósa, Stefán og börn til okkar og borðum við öll saman og njótum kvöldsins saman, það verðu bara örugglega gaman.
nema bara veðrið þar er spáin ekki góð….
en jæja Mikael Logi kallar núna á mömmu sína en pabbi hans skrapp inni Hafnarfjörð til Reynirs,svo ég kveð að sinni og kem með framhald fljótlega eftir áramótin…..bye bye for now.
Hafið það gott um áramótin og gangið hægt um gleðinnar dyr,og passið ykkur á veðrinu,sjáumst eldhress sem allra fyrst á árinu 2008
Sibbulina sagði,
desember 30, 2007 kl. 10:45 pm
HALLLLÓÓÓ WINDOWS……………….. Flott blogg og yndisleg jól sem þið hafið átt.
Elska þig og hugsa til ykkar annaðkvöld.
Bæ í bili þín Sibbulína
Rósa María sagði,
janúar 2, 2008 kl. 12:44 am
glæsilegt blogg. gaman að lesa
gott að þið hafið getað slakað svona vel á um jólin og notið þess að vera saman. útá það snýst þessi hátíð!! ekki um að leggja allt í vinnuna og það er nú ekki einu sinni metið!! en familyan kann að meta það að vera saman!! knús á þig sæta. Rósa María
Sunna Dögg sagði,
febrúar 1, 2008 kl. 11:00 am
jesss ég náði loks að kommenta
Hvernig væri nú að gera e-ð í þessum bloggmálum !!!!!!!
Elska ykkur allveg súper
Rósa María sagði,
febrúar 5, 2008 kl. 8:02 pm
jæja systir góð… nú er kominn febrúar og ennþá blasir við JÓLA HVAÐ?? á þinni síðu… á ekki að fara að lífga síðuna aðeins við hehehe lov you longtime… þín Rósa