Komin frá Köben!!

Jæja þá er best að skrifa smá um ferðina okkar til Köbe. :-)

Það var rosalega gaman!þetta var í fyrsta skiptið okkar allra,en eins og ég sagði áður þá skruppum við svona rétt fyrir jólin til að komast aðeins í burtu og kanski í aðeins meira jólaskap með Rósu og Stefáni,við skemtum okkur alveg konunglega saman,mikið labbað og hlegið!!

við vorum á herbergi.dk það var alveg ágætt,en frábær staðsetning´, við meira að segja fórum í strætó,,,ekki spyrja mig hvenær ég fór í strætó síðast heheeh hef ekki hugmynd hve mörg ár eru síðan, svo fórum við líka smá spöl með lest já það var mikið brallað á stuttum tíma þó aðallega inní H&M hehehe,,,  það er baara snilld,enda ætla ég mér að skreppa einhverntíma þangað þegar ég á pening til að versla….

já Köben heillaði mig ekki alveg eins mikið og ég hélt hún mundi gera,,en gæti gert það að sumri það gæti verið,, en það er rosalega mikið af múrsteinshúsum útum allt og heilu hæðirnar og lengjurnar allt múrsteinn frekar kalt!!en ég svosem fór ekkert rosalega  mikið um til að skoða neitt svakalega mikið kanski vorum við bara þannig staðsett.

Danir eru allaveg alveg greynilega ekki í þessu hræðilega lífstíðarkapphlaupi eins og við hér á frónni,, eru alveg örugglega mun nægjusamari og afslappaðri en við.það er náttúrulega mjög jákvætt,mikil hjólamenning og strætómenning.

Og veðurlega er Danmörk MUN skárri kostur,það var meira að segja heiðgrænt grasið ennþá,og það var sko GAMAN að labba þar því það var ekki rok og rigning eins og er alltaf hér!!!:-(

Æskuvinur hans Pálma (hann Fritz) kom og hitti okkur og fór með okkur STÓRANN rúnt um Köben!!það var rosalega gaman,sýndi okkur allskyns byggingar,,jú það eru auðvita rosalega flottar margar byggingarnar þarna,við sáum líka það sem eftir er að Christianiu ofl…hann sýndi okkur m.a smáhverfi, en það sem var svo merkilegt við það var að þetta voru bara smá skikar sem fólk fékk til að rækta karteflur og annað grænmeti,svo kom fólk með allskyns græjur tengdar þeirri ræktun,sem smátt og smátt varð til þess að fólk var bara búið að byggja sér heilu húsin,og býr bara þar gegn mjög vægu gjaldi og yfirvöld geta ekkert gert.baara snilld hehehehe mér finnst þetta frekar fyndið.Svo bauð hann okkur út að borða á mexikoskum veitingarstað, þar sátum við og spjölluðum dágóða stund, svo þegar við komum á gisthúsið aftur komumst við að því að Fritz og Stefán eru bara skildir hehehe hverjar eru líkurnar!!!

Síðasta kvöldið okkar fórum við út að borða á SVAKALEGA góðum steikarstað,Hereford house,og fengum GEGGJAÐAR steikur mm….þar var bara ein stelpa að þjóna og fullt af fólki,en hún stóð sig eins og hetja og hún náði að halda öllum busy allann tímann algjör snilld,,sú máltíð var í boði Nýheja fyrir mig og Pálma,mjög fallegt af þeim,svo við bara buðum Rósu og Stefáni rauðvín(sem var by the way æði) í boði Nýherja;-)

Mikael Logi var algjör draumur allann tímann bæði í fluginu og bara allri ferðinni ekki mikið mál að ferðast með hann,enda vantaði ekki athyglina og tala nú ekki um að vera á ferðinni allann tímann hehehe

jú maður á eftir að fara aftur til Köben það væri rosalega gaman að ferðast þarna á milli eitthvert sumarið Danmörk-Svíþjóð og Noreg jafnvel víða.

Sem sagt algjör snilldarferð hefði held ég bara ekkert getað heppnast neitt betur.

Gott veður,góður matur og frábær félagsskapur.

2 Ummæli

  1. Lísa frænka sagði,

    desember 14, 2007 kl. 9:57 pm

    Takk fyrir skemmtilega sögu c”,) þetta hefur greinilega verið alveg æðislegt.

    Takk æðislega fyrir síðast, það var rosa gaman í verslunarrúntinum okkar og í heimsókninni hjá Rósu Maríu. Verðum að gera meira af þessu.

    Bið að heilsa ykkur öllum í jólagleðinni sem FLÝGUR um í íslenska rokinu :-)

    Ástarkveðja frá Skaganum – Lísa frænka

  2. Rósa María sagði,

    desember 17, 2007 kl. 11:41 pm

    ohhh þetta var æðisleg ferð!!! langar helst að fara úr þessu ógeðis roki hérna og aftur til dk. takk fyrir frábæra ferð. hefðum ekki getað hugsað okkur betri ferðafélaga :) elska þig stóra systir


Rita ummæli