Jóla hvað!!!!!

Jæja þetta eru búin að vera alveg dýrleg jól,, mikið slappað af og haft það alltof gott, við sofum hér fram að og yfir hádegi, bara svakalega næs.

Jæja hvar á ég að byrja…hmmmm Þorláksmessa já það var bara næs dagur ég þreif eitthvað smá, svo fórum við í skötu til mömmu og pabba,, þ.e   ég og Mikael Logi, við skutluðum Kristofer í vinnu í Grafarholtið um 15:00 og skutumst þaðan beint til mömmu og pabba,,mmm,,,mér fannst skatan svakalega góð, en ég smakkaði hana í leikskólanum hjá Sibbu í fyrsta skiptið í MÖRG ár,en Sibba var svo sæt að bjóða mér að koma og borða ;-) ,,,,, enn og aftur Sibba mín TAKK. Svo komu Fríða og Beta líka að fá sér smá skötu en Beta var bara að lenda frá London, en þau skruppu þangað fjölsk. í smá verslunarleiðangur fyrir jólin,, rosalega gaman að hitta þær og knúsa smá svona korter í jól ;-)

Um kvöldið(þorláksmessu) fórum við ég, Pálmi, Alexander og Mikael Logi og löbbuðu niður Laugaveginn ásamt Mömmu, Pabba, Rósu, Stebba og tengdafólkinu hennar Rósu, það var voða gaman en samt svakalega troðið svona með kerru,en maður var svosem ekkert að stressa sig neitt.

Svo fórum við’ fjögur bara í nýja Hagkaup í Holtagörðum og skoðuðum okkur um og versluðum pínu, þ.a.m jólagjöfina hans Alexanders ;-) og vorum svo komin heim um hálf tólf.

Aðfangadagur!!

Arnór kom til okkar eftir matinn og borðaði með okkur möndluísinn hehehe og hann vann möndluna líka, svo svaf hann hjá okkur það var æðislega næs,mér finnst fátt yndislegra en að hafa alla strákana hjá mér í einu,það er bara æðislegt, besta jólagjöfin mín….

En já veð ég hér úr einu í annað hehehe…

Já við borðuðum sko æðislegann mat saman,og höfðum kveikt á messunni á meðan við borðuðum, en Kristófer var EKKI að fíla það, hann var að deyja úr kvölum strákgreyið hahaha

Yngsti meðlimurinn okkar vara sko algjör draumur frá A-Ö hann bara svaf á meðan við borðuðum svo var hann með okkur í sínum líka fínu flottu náttfötum frá sveinka(eins og við hin öll) á meðan við opnuðum alla flottu fínu pakkana,og allir svakalega ánægðir með sitt,,,  flottar og nytsamlegar jólagjafir takk fyrir okkur enn og aftur,og vona bara að allir hafi verið jafnánægðir með það sem við gáfum þetta árið(reyndi allavega að velja fallegar og nytsamlegar gjafir );-)  og svo eins og við öll vitum þá er það hugurinn sem skiptir máli …….það má svo ekki gleyma því í öllum látonum.

Svo var endað á að setja mynd í tækið sem kom úr einum af þessum pökkum.með heitu súkkulaði í hönd nammi namm hvað er hægt að hugsa sér yndislegra a svona tímum???

Jóladagur!!

Við sváfum FRAMEFTIR  heheheog svo var sett á borð um 14:00 smá kalt hlaðborð brauð, lax, síld ofl. namminamm

og svo bara aftur lagt sig með litla kút,,,, og um kvöldið fórum við í þetta líka fína flotta hangikjötsmatarboð hjá mömmu og pabba það var æðislegt eins og allt sem þau töfra fram,,og það var náttúrulega ekki nóg að hafa bara hangikjöt kalt og heitt heldur voru þau einnig búin að gera þennan líka æðislega góða kjúkl/grísakjötsrétt og hrisgrjón mmm…..það var sem sagt mikið borðað og mikið hlegið í það skiptið.Svaka stuð margir góðir brandarar fuku á milli og þó aðallega á kostnað móður okkar hehehehe hún er BAAARA frábær ef þú lest þetta mamma mín þá bara njóttu myndarammans vona að þú farir að skilja hvernig hann virkar svona með nýja árinu hahahahaha

Annar í jólum!!

sama sagan sofið langt fram á hádegi og bara slappað af í okkar náttfötum þar til við skelltum okkur í sturtu og sjænuðum okkur til fyrir næsta boð,,, en Hulda og Reynir buðu okkur í lambakjöt það var líka svakalega gott,,en þá fórum við bara þrjú.Þá fannst Kristóferi nóg komið af formlegheitum og matarboðum hehehe hann fór að hitta vini sína niðurí bæ,og Alexander var þegar kominn þangað og búið að bjóða honum í mat hjá besta vini hans og sleep over,svo við leifðum þeim bara að sleppa.

svo við vorum bara þrjú ein heima það kvöldið það var ferlega næs,rólegheit og rómó  ;-)

já ekki er hægt að kvarta undan látonum í þessum engli okkar.hann bara drekkur sefur og brosir.

En já eins og þið heyrið þá voru þetta jólin sem við nutum þess að slappa af og vera með strákunum okkar og tala nú ekki um fyrstu jól jólaprinsins,,,sem er bara algjörlega eins og hugur manns,hann er algjört kraftaverk og njótum við hans í botn.

Svolítil breyting frá jólunum í fyrra þegar ég bókstaflega bjó í Nóatúni,,,kom bara aðeins heim til að sofa,það var ferlegt en það var nú samt líka gaman,,en ég sé það núna hvað maður missti af miklu með fjölskyldunni.

Svo eru bara áramótin eftir og eru þau by the way bara á morgun ,,,gaman gaman.

þá koma Mamma, Pabbi, Sunna Dögg, Rósa, Stefán og börn til okkar og borðum við öll saman og njótum kvöldsins saman, það verðu bara örugglega gaman.

nema bara veðrið þar er spáin ekki góð….

en jæja Mikael Logi kallar núna á mömmu sína en pabbi hans skrapp inni Hafnarfjörð til Reynirs,svo ég kveð að sinni og kem með framhald fljótlega eftir áramótin…..bye bye for now.

                      Hafið það gott um áramótin og gangið hægt um gleðinnar dyr,og passið ykkur á veðrinu,sjáumst eldhress sem allra fyrst á árinu 2008   :-)

Sicko – Ruglað þjóðfélag

Var að horfa á Micheal Moore “Sicko ” DVD diskinn. ég verða að segja að ég skamast mín að vera fæddur þarna. þetta er hrein og beint skömm að þessu . þeir ættu að hæla sér meira hvað það er gott að búa í USA og hvað þeir gera fyrir aðra í heiminum – lýttu þér nær. ég er viss um að ef menn fengu að kjósa um Heilbrigðiskerfi eins og þessi þáttur er að sýna sé til í öðrum löndum þá mundi þeir breyta þessu. enn það er ekki hægt þar sem Kapitalsminn er búin að kaupa þingmennina með húð og hár - ég skora á alla að horfa á þessa mynd.   meira hér

Komin frá Köben!!

Jæja þá er best að skrifa smá um ferðina okkar til Köbe. :-)

Það var rosalega gaman!þetta var í fyrsta skiptið okkar allra,en eins og ég sagði áður þá skruppum við svona rétt fyrir jólin til að komast aðeins í burtu og kanski í aðeins meira jólaskap með Rósu og Stefáni,við skemtum okkur alveg konunglega saman,mikið labbað og hlegið!!

við vorum á herbergi.dk það var alveg ágætt,en frábær staðsetning´, við meira að segja fórum í strætó,,,ekki spyrja mig hvenær ég fór í strætó síðast heheeh hef ekki hugmynd hve mörg ár eru síðan, svo fórum við líka smá spöl með lest já það var mikið brallað á stuttum tíma þó aðallega inní H&M hehehe,,,  það er baara snilld,enda ætla ég mér að skreppa einhverntíma þangað þegar ég á pening til að versla….

já Köben heillaði mig ekki alveg eins mikið og ég hélt hún mundi gera,,en gæti gert það að sumri það gæti verið,, en það er rosalega mikið af múrsteinshúsum útum allt og heilu hæðirnar og lengjurnar allt múrsteinn frekar kalt!!en ég svosem fór ekkert rosalega  mikið um til að skoða neitt svakalega mikið kanski vorum við bara þannig staðsett.

Danir eru allaveg alveg greynilega ekki í þessu hræðilega lífstíðarkapphlaupi eins og við hér á frónni,, eru alveg örugglega mun nægjusamari og afslappaðri en við.það er náttúrulega mjög jákvætt,mikil hjólamenning og strætómenning.

Og veðurlega er Danmörk MUN skárri kostur,það var meira að segja heiðgrænt grasið ennþá,og það var sko GAMAN að labba þar því það var ekki rok og rigning eins og er alltaf hér!!!:-(

Æskuvinur hans Pálma (hann Fritz) kom og hitti okkur og fór með okkur STÓRANN rúnt um Köben!!það var rosalega gaman,sýndi okkur allskyns byggingar,,jú það eru auðvita rosalega flottar margar byggingarnar þarna,við sáum líka það sem eftir er að Christianiu ofl…hann sýndi okkur m.a smáhverfi, en það sem var svo merkilegt við það var að þetta voru bara smá skikar sem fólk fékk til að rækta karteflur og annað grænmeti,svo kom fólk með allskyns græjur tengdar þeirri ræktun,sem smátt og smátt varð til þess að fólk var bara búið að byggja sér heilu húsin,og býr bara þar gegn mjög vægu gjaldi og yfirvöld geta ekkert gert.baara snilld hehehehe mér finnst þetta frekar fyndið.Svo bauð hann okkur út að borða á mexikoskum veitingarstað, þar sátum við og spjölluðum dágóða stund, svo þegar við komum á gisthúsið aftur komumst við að því að Fritz og Stefán eru bara skildir hehehe hverjar eru líkurnar!!!

Síðasta kvöldið okkar fórum við út að borða á SVAKALEGA góðum steikarstað,Hereford house,og fengum GEGGJAÐAR steikur mm….þar var bara ein stelpa að þjóna og fullt af fólki,en hún stóð sig eins og hetja og hún náði að halda öllum busy allann tímann algjör snilld,,sú máltíð var í boði Nýheja fyrir mig og Pálma,mjög fallegt af þeim,svo við bara buðum Rósu og Stefáni rauðvín(sem var by the way æði) í boði Nýherja;-)

Mikael Logi var algjör draumur allann tímann bæði í fluginu og bara allri ferðinni ekki mikið mál að ferðast með hann,enda vantaði ekki athyglina og tala nú ekki um að vera á ferðinni allann tímann hehehe

jú maður á eftir að fara aftur til Köben það væri rosalega gaman að ferðast þarna á milli eitthvert sumarið Danmörk-Svíþjóð og Noreg jafnvel víða.

Sem sagt algjör snilldarferð hefði held ég bara ekkert getað heppnast neitt betur.

Gott veður,góður matur og frábær félagsskapur.