nóvember 21, 2007 kl. 10:05 pm (Lilja Hafdís)
Jæja haldið þið að ég sé ekki bara komin með bloggsíðu,,já ég af öllum hehehe(jahérnahér)
Það er sko mikið um að vera hjá mér núna!! Við vorum að láta skíra eins og fram hefur komið, um helgina sem er að koma er ég að fara til Sibbu systur ásamt hinum skvísonum í Spesíum(saumaklúbbnum okkar) og við ætlum að hafa heilann dag í föndurdag, gerðum þetta í fyrra og það var rosalega gaman, bara föndra fyrir jólin og mala allan daginn saman og ekki má gleyma að þar fáum við allskyns góðgæt en við komum allar með eitthvað á borðið, það er svooo kósý…svo pöntum við okkur mat seinnipartinn og endum góðan dag á að borða saman
Helgin eftir þessa þ.e um mánaðarmótin nov-des þá verður Kristófer sko 15 ára úps…tíminn líður.En þá fer ég ásamt mömmu, systrum mínum, Fríðu og Betu í bústað heila helgi þar ætlum við að hlusta saman á jólamusik og föndra eitthvað saman fyrir jólin og að sjálfsögðu kemur Mikael Logi með í þetta allt heheeh, það verður rosalega næs, Pálmi verður heima með eldri prinsana og lofar Kristofer að bjóða vinum heim og hafa gaman á meðan hann fer eitthvað út með Alexander bíó og eitthvað, gaman hjá þeim karlabúskapur heila helgi.
Á fimtudeginum eftir bústaðarferðina förum við saman til Köben við hjónakornin og Mikael Logi já það eru forréttindi að vera áskrifandi á mjólkurbúi mömmu þá fer maður með ALLT.En við ætlum að fara og sjá Köben í jólabúningi og njóta þess að vera saman,,, gott út að borða og kanski versla nokkrar jólagjafir hver veit, Rósa systir og Stefán koma með okkur svo það verður enn meira gaman að fara með einhverjum, þetta verður BAAARA gaman ég get varla beðið, það hefur ekkert af okkur farið til Köben áður svo það verður ennþá skemtilegra.Við förum á fimtudegi og komum heim á mánudegi.Sunna systir ætlar að flytja inn á meðan og passa heimilið,, það þarf varla að passa þessa stráka okkar þeir eru orðnir svo stórir ;-) svo þegar við komum heim þá er bara að gera allt tilbúið fyrir jólin, þessi jól verða aðeins hátíðarlegri hér hjá okkur núna,komin í okkar eigið húsnæði og ekki að vinna öll jólin eins og í fyrra OOOOG komin með enn einn prinsinn til okkar.Þetta er bara yndislegur tími hjá okkur enda ætlum við bara að njóta hans saman.Við erum svooo heppin eigum bara fullkomið líf með fjóra fullkomna stráka, allt er fullkomið á endanum hvernig sem það fer(þá er það fullkomið)with ups and downs,,, jájá það er bara þannig. strákarnir mínir
4 Ummæli
nóvember 21, 2007 kl. 11:53 am (Mikael)
Já nú er búið að skíra drauminn okkar,það gekk rosalega vel framan af,en svo fór svengdin að segja til sín og hann Mikael Logi varð svengri og svengri sem leið á skírnina svo þegar kom að því að SKÍRA hann þá var hann orðinn alle brjálarr…..
og foreldrarnir orðnir frekar stressaðir fyrir af hönd afa hans sem jú hélt á honum í öllum þessum látum……
en hann fékk samt að okkur finnst rosalega fallegt nafn MIKAEL LOGI!!!
En svo fékk hann að drekka STRAX eftir skírnina og nokkrar myndatökur sem by the way hann brosti í þeim hehehe
Veislan var rosalega flott,haldin í sal hjá Fríðu,frænkurnar hans komu með þvílíkar kræsingar á borð og amma og afi keyptu þessa líka svakalega flottu skírnartertu,svo þetta var æðislegt þökk sé þessari yndislegu fjölskyldu sem við erum svo heppin að eiga
TAKK FYRIR OKKUR!!!!!!
Mikael Logi var bara eins og ljós í allri veislunni,fór á smá flakk á milli gestanna og fékk sé smá lúr hér og þar,algjör draumur.
hann var umvafinn öllum þessu nánustu sem færðu honum svakalega fallegar gjafir og hlýju!!
Viljum við nota tækifærið hér og þakka fyrir prinsinn okkar,,TAKK TAKK og takk fyrir að gera þenna dag svona yndislegann með okkur.

2 Ummæli
nóvember 18, 2007 kl. 11:52 am (Bara Almennt)
hvað er að ske hér – stórslys ef þú spyrð mig . Hvernær ætla íslenskir arkitektar að fara vakna fyrir þvi að það er gamaltdags hugsun að hjónaherbergi sé 17 fm og að við “bara sofum þarna ” er svo úrelt hugsun sem frekast getur.
og ég tala nú ekki um þegar er þeir eru að setja eitt baðherb. í 150 – 200 fm hús/íbúð bara hreinlega skil þetta ekki – íslanskir arkitektar takið eftir “Við erum mikið inni hjá okkur yfir árið – bæði vegna veðurs og birtu. Við viljum nota svefnherb líka til slappa af og lesa án þess að þurfa að liggja uppí rúmi , fá aðstöðu til vinna / horfa á sjónvarp og frv. Skoðið þessar myndir hér fyrir neðan -


Annað – öll hjónasvefnherb þurfa að hafa sér baðherb púntur. þegar þú ferð erlendis þá sérðu þetta og öllum finnst þetta mjög þægilegt – af hverju eru ekki verið að gera þetta hér ? Ég bjó erlendis til fjölda ára og var með 35 fm svefnherb risa stóru baðherb með innfeld fata herb - af hverju gera arkitektar ekki þetta á íslandi ?
2 Ummæli
nóvember 18, 2007 kl. 9:58 am (Fjöldskyldan)
Sæll það er ekki á hverjum degi sem maður fer í annað baðið sitt á ævinni
ekki aldeilis, skoðaðu þetta – hrein snild að ná þessari mynd
Baðferð2
Rita ummæli
nóvember 18, 2007 kl. 9:26 am (Mikael)

Kominn 18 nóv og komið að því að skíra strákinn – hann kemur til með að heita Mikael xxxxxx Lord og erum við að rifna af stolti .
Skírninn verður haldið í Kirkjunni sem við giftum okkur 1997 – og veislan verður strax á eftir rétt hjá .
1 ummæli