Páskarnir búnir!!

JÁ JÁ  ég veit,,,ekki nógu dugleg að blogga!!!

En ég ætla að renna mjög hratt yfir páskana.

Við systurnar fórum uppí bústað í Grímsnesinu sem mamma og pabbi leigðu og sváfum eina nótt áður en þau komu.

Sibba komst reyndar ekki með en Imba vinkona Sunnu kom hún er BAAARA yndisleg, og að sjálfsögðu hann Mikael Logi!!

þetta var algjört æði!!!við borðuðum góðann mat, fórum í pottinn og spiluðu clue, sem sagt alveg geggjað.

svo komu mamma,pabbi,Fríða og Helga Jóna næsta dag og við fórum aftur í bæinn eftir að pabbi var búinn að bjóða okkur í æðislega góðann mat.

22.mars bauð Rósa okkur Spesíum í GEÐVEIKANN mat í tilefni afmælis hennar 21.mars

það vantaði reyndar Lísu þar en Beta kom og var með okkur, þetta var ferlega notarlegt kvöld, alltaf svo kósý hjá þessari elsku og næs!!!!!

23.mars fékk litli frændinn okkar það fallega nafn Oliver Ísak, fallegt nafn á fallegann dreng ;-)  og svakalega flott veisla hjá þeim sem við fórum í.

Um kvöldið eldaði ég grísabóg og Arnórinn minn kom í mat með Sögu sína, það var æðislega næs, æi mér finnst svo þægilegt að hafa þau  :-) þau eru svo mikið sætust.

Stittist í að Saga fái bílprófið sitt ;-)gaman gaman!!!!

25.mars átti mamma mín afmæli, og kom í bæinn úr bústaðnum þá, svo ég og Arnór kíktum í smá kvöldkaffi til þeirra, með svona fyrirfram gjöf frá pabba og okkur systrunum og fjölsk. og kort.

en við gáfum henni i-pot fyrir ræktina til að’ dilla sér með Tinu Turner hehehe

27.mars komu tvíburar í heiminn í Noregi hjá Hafsteini og Guðrúnu fjórði strákurinn og haldið þið að þau hafi svo ekki fengið eins prinsessu í kaupbæti ;-) æði æði

allt gekk vel og ekki nema 17 mín. á milli þeirra glæsilegt, svo koma þau heim til að skíra þau svo það verður rosalega gaman að fá að sjá þau öll!!!

29.mars fengum við Huldu og Reyni í mat og komu Inga Jara og Alda með þeim ;-)

það var góður bónus maður sér þær svo sjaldan, agalega gaman bara.

Nú er sem sagt kominn april og allir trukkabílstjórar að verða vitlausir í mótmælum ;-)

algjörar hetjur, það er bara vonandi að þetta allt beri einhvern árangur.

Ebeta frænka og Oliver Ísak komu og sóttu mig og Mikael Loga um hádegi í dag og við fórum saman í kaffi til Rósu,,,, en Ebeta kom við í bakaríi og bauð okkur lunch.

prinsarnir okkar bara sváfum framan af, og líka krúslurnar á Krúslukoti hjá henni Rósu sín!!!  svo við gátum bara sitið þrjár saman í rólegheitunum og malað saman, ferlega næs.

Rósa gaf prinsinum sínum tanngjöf,,,en hún fann fyrstu tönnsluna og ekki vantaði flottheitin hjá henni frekar en fyrri daginn ;-)

hann fékk geggjuð föt frá 66¨norður, ekkert smá flott gjöf :-)

enn og aftur Takk fyrir okkur Rósa mín!!!

Svo kom náttulega að því að vinnan kallaði á Rósu og friðurinn var úti fyrir hana, en svo kom hún Ellen Skottuskotta alltaf jafnmikil skotta hehehe

svo við fórum frá Rósu eitthvað um 15:30

og ég var svo dugleg að ég bara skúraði allt þ.e niðri hehehe og þurrkaði af, búin að flýta smá fyrir morgundeginum!!!ekki leiðinlegt

jæja þá læt ég þetta duga í bili.

Það er slide show hérna neðar!!

munið nú að kvitta mér finnst svooo gaman að fá smá að lesa ;-)

                                  tha tha for now………..

Er sumarið komið?

Já ættli hann Siggi stormur sé að segja satt!!!Er veturinn búinn, þá stittist í sumarið :-) vona að guð gefi okkur eins gott sumar og við fengum í fyrra ;-) það væri sko bara vel þegið, ekki satt?

þessi helgi er búin að vera geggjuð, þetta veður eitt og sér lyftir manni ekkert smá upp.

Núna er maður byrjaður að alvöru í átakinu fór í fyrsta tímann minn á miðvikud. og svo föstud. þá var sko Taæ Bó það er ekkert auðvelt skal ég segja ykkur en mjög gaman að kíkja í kringum sig og sjá einbeytningarsvipinn  á öllum hahaah frekar findið hehehehe en þetta verður allt miklu auðveldara og skemtilegra þegar maður losnar við eitthvað af öllum þessum maga, hann er frekar  mikið fyrir mér í öllum þessum teygjum og beygjum :-(

En það kemur nú.

Eftir tímann komum við Ágústa við hjá Rósu minni og sóttum hana, en hún er búin að vera innilokuð í veikindum þessi elska og og var svo einnig bíl-og karlmannslaus ein heima svo ég bauðst til að bjarga henni frá þessu öllu og koma í mat til mín,æi það er alltaf jafn næs, svo kom Jóel Örn og gisti hjá okkur en Ágústa og Einar voru að fara út, svo við spilltum honum í leiðinni og´LÉTUM ( hehehe) hann vaka til þrjú um nóttina og spila tölvuleik með Alexnaderi og vini hans það var sem sagt rosa gaman hjá þeim.

Við höfum reyndar ekkert nýtt þetta geggjaða veður til að vera úti, en ég og Mikael Logi fórum í næstsíðasta sundtímann okkar í gær, förum í síðasta í fyrramálið, Pálmi kom ekki með okkur en Rósan okkar kom og tók upp helling á video ;-) og sá prinsinn sinn svamla um og kafa og já hún er líka vitna af stælunum í mínum gagnvart Magneu sundkennaranum hehehe hann er svo ótrúlegur hann bara vill ekki sjá hana en var samt skárri núna en hún mátti alls ekki taka hann þá varð hann alveg brjálaður hehehe og nú er það fast á filmu.

 Svo fórum við bara heim eftir smá næs samræður sem ég og Rósan mín áttum saman, það var voðalega næs!! takk Rósa mín!!!!

Mikael fékk grautarlinginn sinn mikið svangur eftir svona strembinn sundtíma ;-)

og fór svo út í vagn um 14:00

svo kom Rósa að sækja okkur Mikael og við fórum saman í kaffi til Fríðu, en Gunni hefði orðið sextugur þann 12. það var rosa gaman að koma þangað, svo fórum við eftir kaffið úti garð og þá sá ég leiðið hans í fyrsta sinn, mikið svakalega er það fallegt, mikill missir að missa þennan yndislega mann.

Svo komu Ágústa,Einar og strákarnir til okkar í lasagna það var rosalega næs fengum okkur smá rauðvín með matnum, og svo fengu strákanrnir sér smá kaffi og koníak ;-)

En við stabilu vinkonurnar vorum bara í vatninu heheehe,,, svooo duglegar

svo sátum við bara á malinu langt fram á nótt :-) geggjað næs.

Í dag er ætlunin að vera dugleg og fara í ræktina ásamt Rósu og Ágústu og fara svo í sjávarseltupottinn(losna við allt þetta seljulita hahahahaha)og jafnvel í gufu á eftir á ohhh það verður sko æði, svo ætla ég að gera tilraun til að fá fjölsk. mína í bíltúr upp í Bláfjöll og hafa það gott úti í þessu geggjaða veðri ;-) og kanski ná góðum myndum!!

En við sjáum hvernig það fer síðar :-).

En jæja þá er svo bara harkan sex á morgun ný vika í átakinu mínu ;-) spennó!!!

tha tha for now!!!!!!

(munið mynda-slide-showið neða á síðunni ef þú ert ekki búin að sjá það og að sjálfsögðu kvitt kvitt ;-)   )

Tannálfur!!

Hehehe já það er sko komin tönn hjá mínum!!í neðri góm nánar tiltekið,algjör stóri strákur.Rósa frænka var sú heppna og fann fyrstu tönnina 6.mars.

Við vorum í sundi í morgun og var hann Mikael Logi bara pirripú ef sundleiðbeinandinn hans kom til hans þá bara vældi hann og ætlaði sko ekki á láta hana neitt hnoðast með sig og setja sig í kaf hahaha það var frekar fyndið ákveðinn ungur maður veit hvað hann vill og hvenær!!!! ;-)

Ég var bara á bakkanum í dag svo ég notaði tækifærið og tók video og myndir voða gaman.

Svo komum við við í bakaríinu á leiðinni heim og vöktum stóru strákana með bakkelsi,voða  gott.

Ég var að skoða myndir í gær frá því sróru strákarnir mínir voru litlir jii það er svo gaman að fara svona memory-lane, þetta voru svo skemtilegir tímar með þá þrjá svona litla, en þá sá ég sko svart á hvítu(eða í lit :-)  ) hvað hann Mikael Logi er líkur Alexanderi nema bara þykkari hehehe algjörar dúllur.

Annars held ég að þetta verði bara róleg helgi ekkert sérstakt um að vera, en er að spá í að fara með Mikael í smá myndatöku í þessum fallega snjó í dag á snjóþotu ;-) það er svo fallegt veður vona bara að ég nái fallegu snjóbakgrunn, ef hann verðu ekki allur bráðnaður þegar prinsinn vaknar.

jæja ætlaði bara að monta mig á fyrstu tönninni!!!

   THA THA FOR NOW……… ;-)

PS. endilega scrolliði niður og kíkið á slide showið!!! ;-)

Með smá fikti!!

Já ég er búin að vera að breyta síðunni í allann dag, þetta er voða gaman, komin með slideshow og allt hvernig líst ykkur á?

Er ég ekki bara að verða klár?

endilega ef þið eruð með einhverjar hugmyndir af breytingu hjá mér látið það koma!!!

ég var að vona að ég gæti sett inn myndaalbúm, finn allavega ekki út hvernig ég ætti að geta það eða er það kanski bara ekki hægt?

allavega þá er ég að reyna að fikra mig áfram.

það er svo ömulegt veðrið úti nennti alls ekki að taka bílinn og fara neitt, svo ég bara eyði tímanum mínum hér að reyna að læra eitthvað nýtt :-)

Check out my Slide Show!

Meira í Febrúar!!

Já ég sagðist ætla að vera duglegri að blogga, svo hér kemur meira!!

já það er búið að vera nóg að gera í þessum mánuði.

Matarklúbburinn okkar koma saman heima hjá Dengsa og Þurý 16.feb. það var bara voðalega gaman og alveg GEÐVEIKUR matur enda svaka góðir kokkar á ferð tek að ofan fyrir þeim hjónum, en þau voru með n-Entrecode hefði ekki getað verið betur eldað,við sáum um forréttinn og þá uppskrift fékk ég hjá Sibbu systir(hverjum öðrum hehehe)geggjað gott pönnusteiktur hörpudiskur með allskyns gumsi og svo mótaði ég hrísgrjónakúlur á hvern disk og pestóbrauð, María og Arne sáu um vínið svakalega gott val!!! og svo kom María og Sigmar með eina bestu köku sem ég hef smakkað svaka massakaka ekta spari sem maður ætti að gera um hver jól, enda ætla ég að gera hana um jólin og hver veit nema að ég geri eina fyrir næsta saumó hmmm hvernig líst ykkur spesíum á það ;-)    stelpur koma svooo……..kvitta og segja comment

sem sagt perfect matarboð í alla staði, hlakka bara til næsta, og að sjálfsögðu var Mikael hrókur alls fagnaðar naut allrar þessara athygli, og fékk svakalega flottann galla úr Zöru frá Maríu og Sigmari.

19.feb. fór ég loksins í klippingu og strípur og ætla ekki að segja ykkur hvað það var mikill léttir,hún Hanna Kristín er algjör perla ég er alltaf jafn ánægð þegar ég er búin að vera hjá henni, hún lýsti það vel núna og létti vel á hárinu svo ég sveif út  ;-)

21.feb var svo saumó hjá Ebetu, og ekki neinar smá kræsingar á borðum þar, hún Ebeta á svo myndalegann mann sem bakaði líka þessa svaka tertu, og hun gerði helling sjálf  nota bene nýkomin af spítalanum eftir barnsburð,,,,,,hello hún er svo mikið duglegust.

og já,,,nei það var EKKERT  saumað þetta kvöld það var að sjálfsögðu mikið dúllast í honum Olive okkar spesíustrák ;-) ohmygod talandi um beauty prins,,, hann svaf allann tímann í gegnum allt hnoðið og hávaða hlátur og læti í þessum líka flottu spesíum hehehe

Inga Lára stóra systirin hans var sko að mála sig og gera sig og Bratz dúkkuna sína voða sætar og fínar fyrir svefninn, enda engin smá dúllurúllurúsina á ferð væri svo mikið til í að eiga eina svona.

Svo var að sjálfsögðu mikið dúllast með Mikael Loga líka, ekki dónalegt fyrir þessa litlu prinsa þrjá að vera inní svona spesíuklúbb.

En allavega geggjað gaman í þessum sauma/kjaft klúbb.hehehe

Og já nú er komið að ÁRSHÁTÍÐ NÝHERJA!!!

Ekkert sparað þar frekar en fyrri daginn alltaf jafn flott og gaman, fékk svaka flottann síðkjól hjá mömmu, og var bara nokkuð fín þó ég segi sjálf frá, já og við hjónin!!

Rósa og Stefán pössuðu Mikael Loga.

Rósa kom og bæði greiddi mér og málaði mig svo ég var alveg extra fín, það var rosa flott hjá henni, svo fórum við um 18:00 en þá var byrjað á fordrykk.

þetta var allt voða flott og fínt, Reynir leigði sér Toxedo svaka flottur og Hulda í æðislega flottum kjól glæsileg hjón!!!

það var rosalega hress veislustjóri Arnar Jónsson alveg meiriháttar hress náungi hann var í skotapilsi svo það voru margar konurnar sem spurðu hann sömu spurningu,,,ERTU í nærbuxum hehehehe

Diddú kom og söng mér finnst hún alltaf jafn æðisleg, en það voru nú ekki allir jafnsammála mér þar.

maturinn var æðislegur fiskiréttarsúpa-nautalund og svo heit súkkul.kaka ásamt fordrykk-hvítvín-rauvín og svo kaffi og grand.

ámeðan á öllu þessu stóð var mikið dúllað og dekrað við litla kútinn minn heima, Rósa setti hann í bað og gaf honum að borða og lék helling við hann ásamt Stefáni að sjálfsögðu.

svo kom Stefán og sótti okkur um miðnætti.

Rosalega gaman.

Og svo er ég hér núna Sunnud. 2.mars já mars það er strax kominn mars, tíminn líður full hratt eins og maður segi á lélegri ísl.    Time flies when youre having fun.  :-)

þetta var yndisleg helgi.

Sibba kom hingað á Föstudaginn með Helgu Jónu og færði mér tvö glæný Sibbubrauð,en hún var að baka einhvern heilann helling kl 5 um morguninn í vinnunni til að selja fyrir þær í vinnunni, æðislega góð brauð.

Á laugardagsmorguninn vöknuðum við snemma til að fara í ungb.sund með Mikael Loga, alltaf jafn æðislega gaman.

svo var ég með skonsukaffi fyrir fjölsk um 14:00 en Pálmi fór að hitta þau Gauta og útaf Imerial forritinu sínu, það gengur allt svakalega vel ;-)

svo komu Arnór Rafn -Rósa og Stefán-Sunna Dögg og mömmu og pabba og ég bakaði skonsur og var með ferska ávexti og fl. það var voða gaman, svo þurfti mamma að fara að vinna.

Svo fórum við Pálmi í Heyfingu og gengum frá námskeiðinu fyrir mig 8 vikna átaksnámsskeið sem byrjar 10.mars   hlakka svoo til og við fórum svo í Intersport og versluðum á mig góða skó fyrir átakið mitt, og skruppum inní Krónuna.

Hvað haldið þið svo að ég hafi gert um 11 þetta kvöld!!!!!!

Ég fór með Rós vinkonu á Players á skagfirskt kvöld heheh já já ég…..

það var voða gaman, ég þekkti nú ekki marga en kannaðist við helling af andlitum, svo komu Rósa ogStefán, en þau voru í fimmtugs afmæli, og komu svo, en ég fór fljótlega eftir það alveg búin á því enda klukkan langt gengin í 2. Svo ég skutlaði þeim hjónakornum bara heim og fór svo heim til mín.

Í dag sunnudag vaknaði ég eitthvað voða þreytt, en náði mér svo yfir kaffibolla ásamt Sibbulínu en hún kom í vonda veðrinu og sýndi mér flottu ársátíðarfötin sín, svaka fín og flott ;-)  svo hentumst við í Elko á meðan litli svaf til að ath hvort eitthvað væri eftir af Raclett á tilboðinu hjá þeim,,,en nei allt búið,  svo við skruppum inní Hagkaup og svo varð ég að drífa mig heim því við  hjónin vorum búin að mæla okkur mót með Silvie og Steinþór heima hjá þeim höfum ekki hitt þau síað áður en við fluttum út já skömm af þessu sambandsleysi endalaust, en það að hreint æðislegt að hitta þau þau eru svo æðisleg bæði tvö algjört eðalfólk og geggjað að sjá krakkana þeirraþá fyrst sér maður hversu langt ewr síðan….þau eiga svo fallegt heimili og enn fallegri börn.

já já kanski er ég orðin svolítið væmin en vitið þið hvað,,,,,, þetta er bara rétt.

svo var farið heim og eldað kjöt í karry og Hulda og Reynir komu í mat, það var voða gaman, þurfum að gera meira af þessu, koma svona saman og hafa gaman.

jæja en núna ætla ég að hafa enn stittra á milli blogga hehehe

þá er bara að gera sig klára undir nýja viku,spáð er enn meiri snjó og kulda, æ þá er svo notarlegt að þurfa ekkert að vera að rífa drauminn minn upp og fara út.

JÆJA HVERNIG VÆRU NÚ AÐ KVITTA!!! annaðhvort kemur enginn hingað til að skoða eða þið verðið að taka ykkur á því annars held ég að ég nenni þessu ekki :-(

Hlakka til að sjá ykkur  Bæ í bili.

Febrúarblogg!!!

Jæja Talandi um að vera alls ekki að standa sig í blogginu hehehe jólahvað…….en bæti hér með úr því.

Já hvar á maður þá að byrja hmm… jólin búin og alveg að koma mars.hehehe

Arnórinn okkar varð 19 ára oh my god pæliði í því litli strákurinn hennar mömmu sín bara orðinn fullorðinn, en hann verður nú samt alltaf litli strákurinn minn,hann er alveg yndislegur, ég er alltaf jafnhreikin af honum, hann er byrjaður aftur í skóla, ég er voða ánægð með það, það er ekki mikið sem bíður þessara krakka í dag án menntunar það er bara þannig og fer sífellt vesnandi.

Annars er nú bara búið að vera rólegt hér hjá okkur,ég bara nýt þess að vera heima með litla strútinn minn, hann er algjört ÆÐI.Hann verður by the way 6 mánaða á morgun,,,,,já tíminn líður svooo hratt.

já við fórum í eins árs afmæli uppá Skaga um daginn 13 jan. en þá varð hann Hákon Árni ofurtöffari eins árs nánar tiltekið 9.jan það var voðalega gaman.Ekki vantaði kræsingarnar allt svo flott og gott.

Svo byrjuðum við með Mikael Loga í ungbarnasundi 12 jan. það var rosalega gaman hann bara lá afslappaður eins og hann hefði bara ekki gert annað en að vera í sundi, það eru tveir strákar í öllum hópnum, og er hinn strákurinn miklu yngri en Mikael hehehe

hann nýtur þess alveg rosalega að vera í sundinu og sofnar svo vel strax á eftir.

Sama dag og við fórum í fyrsta sundtímann hans Mikaels þann 12.jan.fórum við allar systurnar og mamma með Sibbulínunni okkar að máta brúðarkjól,,,,, það var rosalega gaman hún kolféll fyrir öðrum kjólnum sem hún mátaði, sem og við hinar,,,, já og svilkona hennar var líka með okkur og að sjálfsögðu Helga Jóna brúðarmeyjuprinsessan ;-)

Þessi kjóll er ÆÐISLEGUR og Sibba ber hann svo rosalega vel,,,, alveg stórglæsileg.

Eftir mátunina fórum við allar á grænmetisbarinn í Skeifunni og fengum okkur lunch saman,ég stoppaði reyndar ekki lengi það var lítill kútur heima sem var vaknaður og svangur eftir sundtímann sinn, en ég náði alveg að borða í rólegheitunum með þeim samt, voðalega næs.

Hann Pálmi fór svo til Orlando á lotus sphere 18.jan Það var náttulega BAAARA geggjað fyrir hann,,, á öllum sviðum, hann naut sín svooo vel bæði náði hann að hitta vini okkar uppi Lake Mary og fékk helling útúr ráðstefnunni, hann fór í lok ferðarinnar og keyrði alla leið niður í Naples og náði að hitta Evelyn guðmóður sína, en hún er orðin mjög veik, svo ég er hrædd um að hann verði ævinlega þakklátur fyrir þann tíma sem hann náði með henni, en það var honum rosalega erfitt þegar hann fór þaðan.  :-(

Hann náði einnig að hitta Kim systur sína í Sarasota á leiðinni niðureftir

sem sagt rosalega mikil hlaup á mínum manni á stuttum tíma, en sem betur fer náði hann að njóta þessa tíma, hann kom líka mjög þreyttur heim , en sáttur ;-)

Á meðan hann var úti var sko stelpukvöld hjá okkur spesíunum(saumaklúbburinn), ég eldaði handa okkur kjúklingapottrétt og pepperoni-pasta, með hrísgrjónum og Sibbulínan mín kom með BESTA HVÍTLAUKSBRAUÐ EVER.

Það mættu allar nema Elisabet, en hún náði ekki að redda pössun,en Ágústa vinkona kom og fékk að vera með okkur

þetta kvöld var voðalega næs.

Hulda svilkona bauð okkur mér og Mikael í kaffi á þriðjudeginum,það var rosalega næs sátum þar bara á malinu og enduðum svo þar í ekta Reynirshamborgara nammi namm það er sko góður borgari, og skemtilegur félagsskapur, þau ákváðu að skella sér til Tyrklands á meðan ég var þar og pöntuðu hehehe ekkert smá geggjað.

Svo kom Pálmi til baka 27.jan klifjaður alls kyns dóti, en ég var búin að panta bílstól,skiptitösku og föt á Mikael svo verslaði hann einnig eitthvað smá líka,(Victoria secret,Bath and bodyworks;-) ofl.)hann keypti svo æðislega sæta Nike boli á litlu turtildúfurnar okkar alveg í stíl(Arnór og Sögu) og sitt lítið af hverju handa strákunum okkar.Það var voðalega gaman að fá hann heim aftur.;-*

Fyrstu helgina í februar buðu mamma og pabbi okkur í þorramat, það var svaka veisla eins og vanalega hangikjöt saltkjöt og þorramatur, algjört æði, þar voru einnig tengdaforeldrar hennar Rósu og Fríða hans Gunna. og að sjálfsögðu við systur og fjölsk.

Sömu helgi var okkur boðið í afmæliskaffi uppá Skaga en þá átti Hlynur Steinn afmæli átta ára gaurinn þetta er ekki fyndið hvað þessi tími líður hratt,hann er svo mikið æði þessi strákur hann sat sko úti í glugga alveg tilbúinn að taka á móti sínum gestum, ekki dónalegt að fá svona sætann afmælisstrák að taka á móti manni með svona líka sætu brosi,,,, en þar voru ekki neitt smá veitingar í boði alltaf eins og jólin þegar maður kemur til Lísu, hvernig verður þetta þegar hún fermir hehehehe  Pant koma þangað  :-)  hahaha

Alltaf gaman að fara í heimsókn uppá skaga.

Febrúar er BUSY mánuður í jammlífinu hjá okkur hjónum(sossum ekki mikið jamm á mér með barnið á brjósti,,,en samt gaman)  9. feb vorum við með svaka flott matarboð, fengum Björgvin og Ragnheiði ásamt Gísla og Kristínu í nautalund og kjúklingabringur með öllu tilheyrandi tókst svaka vel þótt ég segi sjálf frá, fordrykkur og svo desert.

Þetta var svakalega skemtilegt. Maður geir svona alltof sjaldan.

Hún Hulda okkar átti STÓRAFMÆLI en ákvað bara að stinga af upp í bústað með sínum manni, gott hjá þeimenda ekta veður til að vera bara inni í bústað og gera ekki neitt mmm…En við eigum eftir að fara og knúsa hana, það er bara eins og hún búin alveg í útöndum maður er alltaf svo busy,,,eða gefur sér ekki tíma  hmmmmm.

en okkur var jú boðið í kvöldkaffi, þá höfðu sistkyn hennar komið henni á óvart og það var hóað í okkur, en þegar maður er kominn með svona lítinn kút sem er kominn í náttföt og á leið að drekka eftir kvöldmat mömmu og pabba þá hleypur maður ekki svo auðveldlega bara út, hefði án efa verið gaman. En við förum til hennar í rólegheitum fljótlega  ;-)

Já og svo má ekki gleyma stóviðburði februar mánaðar!!!!!

Hann Oliver spesíustrákur kom í heiminn 11.feb jú hú!!!!stór og myndarlegur strákur 20 merkur 57 cm svaka myndó algjör víkingur eins og Erla sagði

Nú get ég bara ekki beðið eftir að fá að sjá þau. þ.e Oliver og fjölsk. hehehe

Hann var nú tekinn með keisara,en hef svosem ekki fengið neinar fréttir um það svo ætla ekkert að fara neitt úti það, en sennilega vegna þess hve stór hann er, ekki er mamma hans nú stór hehehe,, en það sem máli skiptir er að þeim heilsast báðum vel og allt í rétta átt, sama dag átti hún Betan okkar afmæli og dóttir henna Tanja næsta dag, nóg um að vera í afmælum.

Jæja þá er minn prins vaknaður eftir fjögurra tíma svefn úti í rokinu svo ég ætla að fara að knúsa hann og kjassa, svo er jamm helgi núna um helgina og þarnæstu.

matarklúbburinn að bjóða okkur núna um helgina, svo árshátíð Nýherja þarnæstu en ég verð bara duglegri núna að blogga svo það kemur næst  ;-)

svo er saumó í næstu viku!! nóg að gera.

    jæja nú er mér ekki til setunnar boðið lengur  ;-)

                                  tha tha for now   Lilja Hafdís

Jóla hvað!!!!!

Jæja þetta eru búin að vera alveg dýrleg jól,, mikið slappað af og haft það alltof gott, við sofum hér fram að og yfir hádegi, bara svakalega næs.

Jæja hvar á ég að byrja…hmmmm Þorláksmessa já það var bara næs dagur ég þreif eitthvað smá, svo fórum við í skötu til mömmu og pabba,, þ.e   ég og Mikael Logi, við skutluðum Kristofer í vinnu í Grafarholtið um 15:00 og skutumst þaðan beint til mömmu og pabba,,mmm,,,mér fannst skatan svakalega góð, en ég smakkaði hana í leikskólanum hjá Sibbu í fyrsta skiptið í MÖRG ár,en Sibba var svo sæt að bjóða mér að koma og borða ;-),,,,, enn og aftur Sibba mín TAKK. Svo komu Fríða og Beta líka að fá sér smá skötu en Beta var bara að lenda frá London, en þau skruppu þangað fjölsk. í smá verslunarleiðangur fyrir jólin,, rosalega gaman að hitta þær og knúsa smá svona korter í jól ;-)

Um kvöldið(þorláksmessu) fórum við ég, Pálmi, Alexander og Mikael Logi og löbbuðu niður Laugaveginn ásamt Mömmu, Pabba, Rósu, Stebba og tengdafólkinu hennar Rósu, það var voða gaman en samt svakalega troðið svona með kerru,en maður var svosem ekkert að stressa sig neitt.

Svo fórum við’ fjögur bara í nýja Hagkaup í Holtagörðum og skoðuðum okkur um og versluðum pínu, þ.a.m jólagjöfina hans Alexanders ;-) og vorum svo komin heim um hálf tólf.

Aðfangadagur!!

Arnór kom til okkar eftir matinn og borðaði með okkur möndluísinn hehehe og hann vann möndluna líka, svo svaf hann hjá okkur það var æðislega næs,mér finnst fátt yndislegra en að hafa alla strákana hjá mér í einu,það er bara æðislegt, besta jólagjöfin mín….

En já veð ég hér úr einu í annað hehehe…

Já við borðuðum sko æðislegann mat saman,og höfðum kveikt á messunni á meðan við borðuðum, en Kristófer var EKKI að fíla það, hann var að deyja úr kvölum strákgreyið hahaha

Yngsti meðlimurinn okkar vara sko algjör draumur frá A-Ö hann bara svaf á meðan við borðuðum svo var hann með okkur í sínum líka fínu flottu náttfötum frá sveinka(eins og við hin öll) á meðan við opnuðum alla flottu fínu pakkana,og allir svakalega ánægðir með sitt,,,  flottar og nytsamlegar jólagjafir takk fyrir okkur enn og aftur,og vona bara að allir hafi verið jafnánægðir með það sem við gáfum þetta árið(reyndi allavega að velja fallegar og nytsamlegar gjafir );-)  og svo eins og við öll vitum þá er það hugurinn sem skiptir máli …….það má svo ekki gleyma því í öllum látonum.

Svo var endað á að setja mynd í tækið sem kom úr einum af þessum pökkum.með heitu súkkulaði í hönd nammi namm hvað er hægt að hugsa sér yndislegra a svona tímum???

Jóladagur!!

Við sváfum FRAMEFTIR  heheheog svo var sett á borð um 14:00 smá kalt hlaðborð brauð, lax, síld ofl. namminamm

og svo bara aftur lagt sig með litla kút,,,, og um kvöldið fórum við í þetta líka fína flotta hangikjötsmatarboð hjá mömmu og pabba það var æðislegt eins og allt sem þau töfra fram,,og það var náttúrulega ekki nóg að hafa bara hangikjöt kalt og heitt heldur voru þau einnig búin að gera þennan líka æðislega góða kjúkl/grísakjötsrétt og hrisgrjón mmm…..það var sem sagt mikið borðað og mikið hlegið í það skiptið.Svaka stuð margir góðir brandarar fuku á milli og þó aðallega á kostnað móður okkar hehehehe hún er BAAARA frábær ef þú lest þetta mamma mín þá bara njóttu myndarammans vona að þú farir að skilja hvernig hann virkar svona með nýja árinu hahahahaha

Annar í jólum!!

sama sagan sofið langt fram á hádegi og bara slappað af í okkar náttfötum þar til við skelltum okkur í sturtu og sjænuðum okkur til fyrir næsta boð,,, en Hulda og Reynir buðu okkur í lambakjöt það var líka svakalega gott,,en þá fórum við bara þrjú.Þá fannst Kristóferi nóg komið af formlegheitum og matarboðum hehehe hann fór að hitta vini sína niðurí bæ,og Alexander var þegar kominn þangað og búið að bjóða honum í mat hjá besta vini hans og sleep over,svo við leifðum þeim bara að sleppa.

svo við vorum bara þrjú ein heima það kvöldið það var ferlega næs,rólegheit og rómó  ;-)

já ekki er hægt að kvarta undan látonum í þessum engli okkar.hann bara drekkur sefur og brosir.

En já eins og þið heyrið þá voru þetta jólin sem við nutum þess að slappa af og vera með strákunum okkar og tala nú ekki um fyrstu jól jólaprinsins,,,sem er bara algjörlega eins og hugur manns,hann er algjört kraftaverk og njótum við hans í botn.

Svolítil breyting frá jólunum í fyrra þegar ég bókstaflega bjó í Nóatúni,,,kom bara aðeins heim til að sofa,það var ferlegt en það var nú samt líka gaman,,en ég sé það núna hvað maður missti af miklu með fjölskyldunni.

Svo eru bara áramótin eftir og eru þau by the way bara á morgun ,,,gaman gaman.

þá koma Mamma, Pabbi, Sunna Dögg, Rósa, Stefán og börn til okkar og borðum við öll saman og njótum kvöldsins saman, það verðu bara örugglega gaman.

nema bara veðrið þar er spáin ekki góð….

en jæja Mikael Logi kallar núna á mömmu sína en pabbi hans skrapp inni Hafnarfjörð til Reynirs,svo ég kveð að sinni og kem með framhald fljótlega eftir áramótin…..bye bye for now.

                      Hafið það gott um áramótin og gangið hægt um gleðinnar dyr,og passið ykkur á veðrinu,sjáumst eldhress sem allra fyrst á árinu 2008   :-)

Sicko - Ruglað þjóðfélag

Var að horfa á Micheal Moore “Sicko ” DVD diskinn. ég verða að segja að ég skamast mín að vera fæddur þarna. þetta er hrein og beint skömm að þessu . þeir ættu að hæla sér meira hvað það er gott að búa í USA og hvað þeir gera fyrir aðra í heiminum - lýttu þér nær. ég er viss um að ef menn fengu að kjósa um Heilbrigðiskerfi eins og þessi þáttur er að sýna sé til í öðrum löndum þá mundi þeir breyta þessu. enn það er ekki hægt þar sem Kapitalsminn er búin að kaupa þingmennina með húð og hár - ég skora á alla að horfa á þessa mynd.   meira hér

Komin frá Köben!!

Jæja þá er best að skrifa smá um ferðina okkar til Köbe. :-)

Það var rosalega gaman!þetta var í fyrsta skiptið okkar allra,en eins og ég sagði áður þá skruppum við svona rétt fyrir jólin til að komast aðeins í burtu og kanski í aðeins meira jólaskap með Rósu og Stefáni,við skemtum okkur alveg konunglega saman,mikið labbað og hlegið!!

við vorum á herbergi.dk það var alveg ágætt,en frábær staðsetning´, við meira að segja fórum í strætó,,,ekki spyrja mig hvenær ég fór í strætó síðast heheeh hef ekki hugmynd hve mörg ár eru síðan, svo fórum við líka smá spöl með lest já það var mikið brallað á stuttum tíma þó aðallega inní H&M hehehe,,,  það er baara snilld,enda ætla ég mér að skreppa einhverntíma þangað þegar ég á pening til að versla….

já Köben heillaði mig ekki alveg eins mikið og ég hélt hún mundi gera,,en gæti gert það að sumri það gæti verið,, en það er rosalega mikið af múrsteinshúsum útum allt og heilu hæðirnar og lengjurnar allt múrsteinn frekar kalt!!en ég svosem fór ekkert rosalega  mikið um til að skoða neitt svakalega mikið kanski vorum við bara þannig staðsett.

Danir eru allaveg alveg greynilega ekki í þessu hræðilega lífstíðarkapphlaupi eins og við hér á frónni,, eru alveg örugglega mun nægjusamari og afslappaðri en við.það er náttúrulega mjög jákvætt,mikil hjólamenning og strætómenning.

Og veðurlega er Danmörk MUN skárri kostur,það var meira að segja heiðgrænt grasið ennþá,og það var sko GAMAN að labba þar því það var ekki rok og rigning eins og er alltaf hér!!! :-(

Æskuvinur hans Pálma (hann Fritz) kom og hitti okkur og fór með okkur STÓRANN rúnt um Köben!!það var rosalega gaman,sýndi okkur allskyns byggingar,,jú það eru auðvita rosalega flottar margar byggingarnar þarna,við sáum líka það sem eftir er að Christianiu ofl…hann sýndi okkur m.a smáhverfi, en það sem var svo merkilegt við það var að þetta voru bara smá skikar sem fólk fékk til að rækta karteflur og annað grænmeti,svo kom fólk með allskyns græjur tengdar þeirri ræktun,sem smátt og smátt varð til þess að fólk var bara búið að byggja sér heilu húsin,og býr bara þar gegn mjög vægu gjaldi og yfirvöld geta ekkert gert.baara snilld hehehehe mér finnst þetta frekar fyndið.Svo bauð hann okkur út að borða á mexikoskum veitingarstað, þar sátum við og spjölluðum dágóða stund, svo þegar við komum á gisthúsið aftur komumst við að því að Fritz og Stefán eru bara skildir hehehe hverjar eru líkurnar!!!

Síðasta kvöldið okkar fórum við út að borða á SVAKALEGA góðum steikarstað,Hereford house,og fengum GEGGJAÐAR steikur mm….þar var bara ein stelpa að þjóna og fullt af fólki,en hún stóð sig eins og hetja og hún náði að halda öllum busy allann tímann algjör snilld,,sú máltíð var í boði Nýheja fyrir mig og Pálma,mjög fallegt af þeim,svo við bara buðum Rósu og Stefáni rauðvín(sem var by the way æði) í boði Nýherja ;-)

Mikael Logi var algjör draumur allann tímann bæði í fluginu og bara allri ferðinni ekki mikið mál að ferðast með hann,enda vantaði ekki athyglina og tala nú ekki um að vera á ferðinni allann tímann hehehe

jú maður á eftir að fara aftur til Köben það væri rosalega gaman að ferðast þarna á milli eitthvert sumarið Danmörk-Svíþjóð og Noreg jafnvel víða.

Sem sagt algjör snilldarferð hefði held ég bara ekkert getað heppnast neitt betur.

Gott veður,góður matur og frábær félagsskapur.

« Fyrri færslur